Hoppa yfir valmynd
14.01. 2021 Utanríkisráðuneytið

Malaví: Þriggja daga þjóðarsorg og lýst yfir neyðarástandi

Ljósmynd frá Malaví: WFP/Badre Bahaji - mynd

Tveir ráðherrar í ríkisstjórn Malaví létust á þriðjudag af völdum COVID-19. Lazarus Chakwera forseti Malaví hefur lýst yfir neyðarástandi og þriggja daga þjóðarsorg. Hann hefur enn fremur fyrirskipað að fánar verði dregnir í hálfa stöng. Smitum hefur fjölgað hratt í landinu á síðustu dögum.

Af 235 dauðsföllum í Malaví af völdum sjúkdómsins hafa 50 orðið frá janúarbyrjun. Forsetinn hvatt þjóðina í sjónvarpsávarpi til að virða reglur um sóttvarnir og lét jafnframt í ljós óskir um alþjóðlegan stuðning í baráttunni gegn farsóttinni, frá Stofnunum sameinuðu þjóðanna, frjálsum félagasamtökum og einkageiranum.

„Ástandið hefur hríðversnað dag frá degi en því miður eru upplýsingar af skornum skammti og óljóst hver þróunin verður. Hér er ekkert þríeyki með daglega upplýsingafundi,“ segir Inga Dóra Pétursdóttir forstöðumaður sendiráðs Íslands í Lilongwe.

Ráðherrarnir sem létust voru Lingison Belekanyama ráðherra sveitarstjórnarmála og Muhammad Sidik Mia ráðherra samgöngumála. Fréttamiðlar í Malaví segja að tæplega helmingur ráðherra í ríkisstjórn landsins sé með COVID-19 en alls sitja 32 ráðherrar í stjórninni.

Í sjónvarpsávarpinu hvatti forsetinn þegna sína til að fylgja reglum um sóttvarnir, meðal annars handþvott með sápu, virða fjarlægðartakmörk og bera andlitsgrímur.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum