Hoppa yfir valmynd
15.01. 2021 Utanríkisráðuneytið

Úganda: Allt stefnir í yfirburðasigur Museveni

Miklar biðraðir mynduðust víða í gær þegar kjörstaðir opnuðu. - mynd

Íbúar Úganda gengu að kjörborði í gær í forseta- og þingkosningum sem fóru að mestu leyti friðsamlega fram. Samkvæmt fyrstu tölum stefnir í yfirburðasigur Yoweri Museveni forseta sem kemur til með að sitja á forsetastóli sjötta kjörtímabilið í röð. Þegar fjórðungur aðkvæða hefur verið talinn hefur forsetinn fengið um 65 prósent atkvæða. Tíu aðrir frambjóðendur buðu sig fram til forseta. Af þeim hefur þingmaðurinn sem kallar sig Bobi Wine langmest fylgi, eða rúmlega 23 prósent.

Sameinuðu þjóðirnar höfðu í aðdraganda kosninganna hvatt stjórnvöld í Úganda til þess að tryggja heiðarlegar og friðsamlegar kosningar. Undanfarna mánuði hefur mikil spenna verið í landinu vegna kosninganna og blóðug átök leiddu til þess í nóvember að fimmtíu manns létust. Síðustu sólarhringana fyrir kosningar lokuðu stjórnvöld á internetið og samfélagsmiðla, handtökur hafa verið tíðar og núna í morgunsárið umkringdi herinn heimili Bobi Wine.

Samkvæmt fréttamiðlum í Úganda var kjörsókn mikil þrátt fyrir óttann við kórónuveiruna. Alls voru um 18 milljónir íbúa á kjörskrá og kjörstaðir rúmlega 35 þúsund talsins. Úrhelli setti svip sinn á daginn á einhverjum kjörstöðum og leiddi til þess að talning atkvæða hófst síðar en ráðgert hafði verið. Einnig voru tæknileg vandkvæði á fáeinum kjörstöðum, meðal annars í höfuðborginni Kampala, þar sem einnig var tilkynnt um þjófnað á kjörkassa.

Bobi Wine tilkynnti í morgun að hann hafni niðurstöðum kjörstjórnar um úrslit kosninganna og kveðst sjálfur hafa sigrað. Hann segir víðtækt svindl hafa átt sér stað.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum