Hoppa yfir valmynd
08.04. 2021 Utanríkisráðuneytið

Styrkur til að bæta fiskveiðistjórnun í Viktoríuvatni

Ljósmynd frá Viktoríuvatni: gunnisal - mynd

Samstarfssjóður utanríkisráðuneytisins við atvinnulíf um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna hefur veitt íslenska fyrirtækinu Intellecon hf. 30 milljóna króna styrk til þess að bæta fiskveiðistjórnun í Viktoríuvatni. Verkefnið er til tveggja ára og verður unnið með Fiskveiðistofnun Viktoríuvatns sem hefur það hlutverk að samhæfa stjórnun og þróun fiskveiða í þessu stærsta stöðuvatni Afríku. Sú stofnun er rekin af Austur-Afríkusambandinu.

Þrjú ríki eiga land að Viktoríuvatni, Úganda, Tansanía og Kenía, en höfuðstöðvar Fiskveiðistofnunar Viktoríuvatns (Lake Victoria Fisheries Organization, LVFO) eru í Jinja í Úganda. Að sögn Gunnars Haraldssonar hagfræðings og framkvæmdastjóra Intellecon hafa fiskveiðar í Viktoríuvatni aukist hratt á síðustu árum og sífellt fleira fólk hefur lífsviðurværi sitt af því sem vatnið gefur.

„Fiskveiðarnar í Viktoríuvatni eru ekki reknar á sjálfbæran hátt fremur en víða annars staðar. Þær fela í sér bæði efnahagslega sóun og valda umhverfisskaða og framlag þeirra til velsældar fiskveiðisamfélaganna umhverfis vatnið er miklu minna en það gæti verið. Þar sem fiskveiðarnar í Viktoríuvatni eru miklar og verðmætar nemur tjónið af þessum sökum háum fjárhæðum á hverju ári,“ segir Gunnar.

Grunnmarkmiðið með verkefninu er tvíþætt að sögn Gunnars. Það er í fyrsta lagi að hanna stjórnskipan fiskveiða fyrir Viktoríuvatn sem nær því að hámarka efnahagslegan ávinning af fiskveiðunum og samtímis að styrkja fiskveiðisamfélögin, vernda umhverfisgæði umhverfis vatnið og bæta lífríkið í vatninu. Annað meginmarkmið er að útfæra áætlun um innleiðingu þessarar stjórnskipunar fiskveiða í vatninu og meta viðkomandi kostnað, ábata og áhættu.

Verkefnið hófst í byrjun aprílmánaðar.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

14. Líf í vatni
8. Góð atvinna og hagvöxtur
2. Ekkert hungur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum