Hoppa yfir valmynd
11.06. 2021 Utanríkisráðuneytið

Öryggisráðið styður annað fimm ára tímabil Antonio Guterres

Ljósmynd: UN/Mark Garten - mynd

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt að leggja til að António Guterres skuli kosinn aðalframkvæmdastjóri samtakanna öðru sinni. Samkvæmt frétt Upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna er það formlega allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sem kýs til embættisins að fengnum ráðleggingum Öryggisráðsins. Guterres er einn í kjöri.

„Það hafa verið einstök forréttindi að vera í þjónusta aðildarríkjanna og veita því stórkostlega starfsliði, konum og körlum, sem þau hafa á að skipa undanfarin fjögur og hálft ár á meðan við höfum glímt við svo margslungnar áskoranir,“ sagði Guterres þegar samþykkt öryggisráðsins lá fyrir.

Flestir aðalframkvæmdastjórar hafa gegnt embætti í tvö kjörtímabil. Bandaríkin beittu þó neitunarvaldi til að hindra að Boutros Ghail gegndi áfram embætti 1996.

António Guterres var meðal annars forsætisráðherra Portúgals, formaður Alþjóðasambands jafnaðarmanna og forstjóri Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) áður en hann var kjörinn aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna til fimm ára, 1. janúar 2017. Hann er sjötíu og tveggja ára, fæddur 1949.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum