Hoppa yfir valmynd
15.07. 2021 Utanríkisráðuneytið

Brugðist við neyðarástandi á Sahel-svæðinu í Afríku

Neyðarástand ríkir í þremur ríkjum Mið-Sahel: Búrkína Fasó, Malí og Níger. - myndOCHA

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis og þróunarsamvinnuráðherra hefur ákveðið að 25 milljónum króna verði varið til að bregðast við neyðarástandi á Sahel-svæðinu í Afríku. Framlaginu verður ráðstafað til nýstofnaðs svæðasjóðs á vegum samhæfingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA).

Neyðarástand ríkir í þremur ríkjum Mið-Sahel: Búrkína Fasó, Malí og Níger. Löndin eru við þolmörk og þörfin fyrir alþjóðlega aðstoð fer stigvaxandi. Íbúarnir búa við mjög lítið matvælaöryggi,  kynbundið og kynferðislegt ofbeldi er alvarlegt vandamál og fólki á flótta fjölgar hratt. Orsakirnar eru margar og samofnar en langvarandi fátækt og atvinnuleysi, ör fólksfjölgun, loftslagsbreytingar og náttúruhamfarir, veikir stjórnarhættir og vopnuð átök eru meðal þeirra. 

Ísland hefur stutt við OCHA til fjölda ára en starfsvið stofnunarinnar tengist áherslum Íslands á sviði mannúðaraðstoðar þá einkum með tilliti til viðbragðsflýtis og samhæfingarhlutverks stofnunarinnar. OCHA er ein af fjórum áherslustofnunum og sjóðum Íslands í mannúðaraðstoð ásamt Neyðarsjóði Sameinuðu þjóðanna (CERF), Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR).

OCHA gegnir lykilhlutverki í samhæfingu mannúðaraðstoðar á heimsvísu. Svæðasjóðir OCHA gera gjafafríkjum kleift að sameinast í stórum sjóðum ætluðum til mannúðarverkefna á ákveðnum stað eða landi og er því um fyrirsjáanlegt og skilvirkt fjármagn að ræða.

  • Íbúar í Níger búa við mjög lítið matvælaöryggi,  kynbundið og kynferðislegt ofbeldi er alvarlegt vandamál og fólki á flótta fjölgar hratt. - mynd
  • Brugðist við neyðarástandi á Sahel-svæðinu í Afríku - mynd úr myndasafni númer 2

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum