Hoppa yfir valmynd
14.09. 2021 Utanríkisráðuneytið

UNICEF hvetur þjóðarleiðtoga til að aðstoða í Afganistan

Ljósmynd: UNICEF - mynd

„Hjálpið okkur. Það hefur aldrei verið mikilvægara að standa með börnunum í Afganistan og fólkinu sem aðstoðar þau,“ sagði Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF, í ávarpi á ráðherrafundi um ástandið í Afganistan í Genf í gær. Í ákalli lagði Fore áherslu á að þjóðir létu ekki sitt eftir liggja og fjármögnuðu af fullum þunga neyðaraðgerðir við mannúðarkrísunni í Afganistan.

Á fundinum, sem António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna boðaði til, fengu ráðherrar að heyra hvernig tíu milljónir afganskra barna þurfi á mannúðaraðstoð að halda til að lifa af. Hvernig ein milljón afganskra barna muni þjást af alvarlegri bráðavannæringu á þessu ári án aðgerða. Hvernig 600 þúsund Afgana, þar af helmingur þeirra börn, hafi neyðst til að flýja heimili sín á árinu og hvernig tala fylgdarlausra barna í landinu hækkar dag frá degi. Hvernig aðgerða sé þörf og það strax.

Í ávarpi vék Fore að árangri UNICEF á vettvangi, en Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna hefur verið til staðar fyrir fólkið í Afganistan í nærri sjötíu ár.

„Bara síðustu tvær vikur hefur UNICEF útvegað 170 þúsund manns drykkjarvatn í miðjum þurrkum. Haldið úti færanlegum teymum heilbrigðisstarfsmanna í fjórtán héruðum til að halda áfram að veita íbúum grunnheilbrigðisþjónustu. Síðustu vikuna í ágúst veitti UNICEF fjögur þúsund vannærðum börnum undir fimm ára aldri nauðsynlega næringarmeðferð,“ sagði Fore.

Hún benti á að ekkert af þessum væri mögulegt án framlínustarfsmanna UNICEF á vettvangi og starfsfólks UNICEF í Afganistan. Þau væru nú sem endranær reiðubúin að hætta lífi sínu til að þjóna börnunum í Afganistan. En þörf væri á frekari fjárstuðningi frá öllum þjóðum.

„Án ykkar stuðnings er hætt við að þessi lífsnauðsynlega þjónusta stöðvist og eymd þjóðar í sárum aukist enn. Ríki heimsins geta ekki látið það gerast.“

UNICEF á Íslandi hefur undanfarnar vikur staðið fyrir neyðarsöfnun fyrir börn í Afganistan. Viðbrögð landsmanna hafa verið virkilega jákvæð. Enn er hægt að styðja söfnunina með því að senda SMS-ið BARN í númerið 1900 ( til að gefa 1.900 krónur) eða gefa frjálst framlag hér

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum