Hoppa yfir valmynd
30.09. 2021 Utanríkisráðuneytið

Sautján sérfræðingar útskrifaðir frá Landgræðsluskóla GRÓ

Útskriftarhópurinn: Ljósmynd: GRÓ LRT - mynd

Sautján sérfræðingar voru í vikunni útskrifaðir frá Landgræðsluskóla GRÓ (GRÓ LRT), átta konur og níu karlar, frá átta löndum í Afríku og Mið-Asíu: Eþíópíu, Gana, Kirgistan, Mongólíu, Lesótó, Malaví, Tadsíkistan og Úganda. Öll hafa þau stundað nám við skólann í landgræðslu og sjálfbærri landnýtingu undanfarna sex mánuði.

Á útskriftarathöfninni ávarpaði Martin Eyjólfsson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, útskriftarhópinn og áréttaði mikilvægi þess að ná heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna en landgræðsla og sjálfbær landnýting er ein þeirra leiða til að ná til dæmis markmiði 15 um Líf á landi. Einnig tóku til máls á útskriftarathöfninni Dr Sjöfn Vilhelmsdóttir, forstöðumaður GRÓ LRT, og tveir nemar skólans, Paulean Kadammanja frá Malaví og Ganzorig Ugliichimeg frá Mongólíu, fyrir hönd nemahópsins. Nína Björk Jónsdóttir, forstöðumaður GRÓ, þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu afhenti skírteinin. Í lok athafnar óskaði Dr Ragnheiður I Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, hópnum til hamingju og lýsti yfir ánægju með veru nemahópsins innan veggja Landbúnaðarháskólans á Keldnaholti, þar sem Landgræðsluskólinn er starfræktur.

Þetta er í fyrsta sinn sem Landgræðsluskólinn útskrifar nemendur úr sex-mánaða náminu undir merkjum GRÓ, en skólinn varð hluti af GRÓ – þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu, í byrjun árs 2020. Vegna heimsfaraldurins reyndist ekki unnt að taka á móti sérfæðingum frá samstarfslöndum Landgræðsluskólans í Afríku og Mið-Asíu árið 2020. „Það var því ánægjulegt að geta byrjað sex-mánaða námið í byrjun apríl í ár, þrátt fyrir flækjustig vegna ferðalaga á milli landa og heimsálfa, sóttkvíar við komu til landsins og margföld COVID-próf,“ segir Sjöfn Vilhelmsdóttir.

Landgræðsluskólinn er fjármagnaður af utanríkisráðuneytinu sem hluti af alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands. Skólinn hefur starfað frá árinu 2007 og hafa alls 156 sérfræðingar frá samstarfsstofnunum skólans í Afríku og Asíu útskrifast úr skólanum. Stofnanirnar eru ýmist ráðuneyti, umhverfisstofnanir, héraðsstjórnir og félagasamtök, eða háskóla- og rannsóknastofnanir, allt aðilar sem vinna að málefnum sem tengjast landgræðslu, jarðvegs-og loftslagsrannsóknum og vinnu með landnotendum, eins og bændum og öðrum sem nýta land til síns viðurværis.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum