Hoppa yfir valmynd
05.11. 2021 Utanríkisráðuneytið

UNICEF: Hafnarfjarðarbær tilnefndur til hvatningaverðlauna

Ljósmynd: UNICEF - mynd

Í morgun bárust þær fréttir að Hafnarfjarðarbær er tilnefndur til Hvatningarverðlauna Barnvænna sveitarfélaga UNICEF (e. Child Friendly Cities and Local Governments Inspire Awards) fyrir verkefni sitt „Brúin“ í flokknum „barnvæn félagsþjónusta“.  Almenningi gefst kostur á að taka þátt í netkosningu verðlaunanna og hægt er að kjósa sitt uppáhaldsverkefni til 14. nóvember næstkomandi.

Samkvæmt frétt frá UNICEF er markmið Brúarinnar að samþætta þjónustu Hafnarfjarðarbæjar og auka lífsgæði barna, unglinga og fjölskyldna þeirra. „Bæjaryfirvöld hafa frá árinu 2018 þróað verklag í þeim tilgangi að efla stuðning og þjónustu við börn í leik- og grunnskólum bæjarins. Áhersla er lögð á að veita þjónustu á fyrri stigum með aðkomu brúarteyma leik-og grunnskólanna. Ásamt því hefur samvinna fagfólks verið efld á milli fjölskyldu- og barnamálasviðs og mennta- og lýðheilsusviðs Hafnarfjarðar,“ segir í fréttinni. Nánar er hægt að lesa um verkefnið á vef bæjarins hér. 

Tilkynnt verður um sigurvegara 17. nóvember næstkomandi og UNICEF hvetur að sjálfsögðu alla til að greiða þessu flotta framtaki Hafnfirðinga atkvæði sitt á vefsíðu Inspire Awards. Á vefsíðunni er einnig hægt að horfa á kynningarmyndband um verkefnið og greiða atkvæði í fleiri flokkum verðlaunanna.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum