Hoppa yfir valmynd
17.11. 2021 Utanríkisráðuneytið

Allir heilbrigðisfulltrúar í Mangochi á nýjum reiðhjólum

Við afhendingu reiðhjólanna í Mangochi í gær: Inga Dóra Pétursdóttir, forstöðumaður sendiráðs Íslands í Lilongwe  ásamt ráðuneytisstjórum heilbrigðisráðuneytis og sveitastjórnarráðuneytis Malaví, formanni héraðsstjórnar Mangochi og heilbrigðisfulltrúa. - mynd

„Dagurinn markaði stóran áfanga í þróunarsamvinnu Íslands og héraðsstjórnar Mangochi héraðs í Malaví því sendiráðið afhenti í gær 570 reiðhjól til allra heilbrigðisfulltrúa í umdæminu. Reiðhjólin eru hluti af stuðningi Íslands við eflingu grunnþjónustu á sviði heilbrigðismála í héraðinu,“ segir Inga Dóra Pétursdóttir forstöðumaður sendiráðs Íslands í Lilongwe.

Heilbrigðisfulltrúar (Health Surveillance Assistants - HSAs) sinna lykilhlutverki í lýðheilsumálum í Malaví. Þeir fara á milli húsa í afskekktum þorpum og fylgjast með heilsu og hreinlæti, fæðingum og dauðsföllum, veikindum og vannæringu, svo fátt eitt sé nefnt. Heilbrigðisfulltrúar fá einnig kennslu og eru þjálfaðir í bólusetningum, fyrstu hjálp og sjúkdómsgreiningu og þjóna sem tengiliðir íbúana við heilbrigðiskerfið en erfitt er að tryggja íbúum aðgengi að heilbrigðisþjónustu í héraði með rúmlega 1,2 milljón íbúa á 6000 ferkílómetra svæði.

Í Mangochi héraði sinna heilbrigðisfulltrúar fleiri einstaklingum og stærri svæðum en gengur og gerist annarsstaðar í landinu. Til að mynda sinnir hver og einn heilbrigðisfulltrúi í Mangochi um 2300 einstaklingum en mælt er með því að fulltrúar hafi einungis 100 einstaklinga á sinni könnu. Fulltrúarnir þurfa einnig að ferðast langar vegalengdir á erfiðum vegum við krefjandi aðstæður. Nýju reiðhjólin auðvelda því heilbrigðisfulltrúunum að sinna þessu mikilvæga og ábyrgðamikla starfi að bæta aðgengi þorpsbúa að grunnheilbrigðisþjónustu. 

 

 

Árangur af samvinnu Íslands og Malaví

Mikill framgangur hefur verið í eflingu á heilbrigðisþjónustu á héraðsstigi í Mangochi frá árinu 2012. Fjögur sveitafélög í Mangochi  hafa fengið vottun stjórnvalda fyrir að sjá öllum heimilum fyrir drykkjarhæfu vatni og viðunandi salernis- og hreinlætisaðstöðu. Í kjölfarið hefur stórlega dregið úr hvers kyns pestum, ekkert nýtt tilfelli kóleru hefur verið skráð frá árinu 2012 og færri börn þjást af niðurgangspestum en áður. Sextán heilsupóstar á afskekktum svæðum í héraðinu hafa verið byggðir og fimm póstar verða byggðir á næstu mánuðum. Fjórtán starfsmannahús fyrir heilbrigðisfulltrúa hafa einnig verið reist og þrjú hús verða byggð á næstu mánuðum.

Heilbrigðisyfirvöld í Mangochi hlutu verðlaun fyrir framúrskarandi árangur á síðasta ári en valið byggist á mælanlegum stöðlum yfirvalda um framfarir. Árangurinn er að miklu leyti þakkaður samstarfi við Ísland.

Í meðfylgjandi myndbandi frá árinu 2015 er fylgst með heilbrigðisfulltrúa að störfum í Mangochi.

 

  • Mikill framgangur hefur verið í eflingu heilbrigðisþjónstu í Mangochi. - mynd

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum