Hoppa yfir valmynd
22.11. 2021 Utanríkisráðuneytið

Jarðhitaskólinn útskrifar 25 sérfræðinga

Frá útskriftinni á föstudag. - mynd

Tuttugu og fimm sérfræðingar frá fjórtán þjóðríkjum útskrifuðust frá Jarðhitaskóla GRÓ síðastliðinn föstudag, eftir sex mánaða nám á Íslandi. Jarðhitaskólinn er elstur skólanna fjögurra sem starfa undir merkjum GRÓ – þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu, í samvinnu við UNESCO. Hlutfall kvenna hefur aldrei verið jafn hátt í útskriftarhópnum, tólf konur og þrettán karlar.

Martin Eyjólfsson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins ávarpaði útskriftarhópinn og flutti honum hamingjuóskir utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra. Martin sagði að þau hefðu öll á síðustu mánuðum orðið vitni að því hvað jarðvarmi gegni stóru hlutverki á Íslandi og hvernig það sem gerist undir yfirborði jarðar hafi bein áhrif á lífið á eldfjallaeyju. Martin kvaðst hafa alist upp í Vestmannaeyjum, hann hefði verið ungbarn þegar hann og fjölskyldan sigldu frá eyjunni um miðja nótt eftir að eldgos hófst í Heimaey. „Ísland hefur á þessu ári verið ykkur eins og kennslubók í jarðfræði með eldgos nánast í bakgarðinum,“ sagði hann.

Nína Björk Jónsdóttir forstöðumaður GRÓ og Guðni Axelsson forstöðumaður Jarðhitaskólans afhentu skírteinin við athöfnina. Flestir sérfræðinganna sem útskrifuðust að þessu seinni voru frá Kenía, sex talsins, þrír komu frá Eþíópíu og Indónesíu, tveir frá Ekvador, El Salvador og Níkaragva, og einn frá Alsír, Kína, Djibútí, Indlandi, Íran, Filippseyjum, Úganda og Kólumbíu, sá fyrsti frá síðasttalda landinu.

Jarðhitaskólinn hefur starfað í rúmlega fjóra áratugi, frá árinu 1979, og hefur útskrifað 743 vísindamenn frá 64 löndum. Skólinn er hýstur af Íslenskum orkurannsóknum (ÍSOR) og rekinn af opinberum framlögum til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu.

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

7. Sjálfbær orka

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum