Hoppa yfir valmynd
23.11. 2021 Utanríkisráðuneytið

COVID-19 búnaður til samstarfshéraða í Úganda

Lyfjabúr héraðsstjórnarinnar í Buikwe. - mynd

Búnaður til að bregðast við COVID-19 faraldrinum hefur verið afhentur tveimur fátækum samstarfshéruðum Íslands í Úganda, Buikwe og Namayingo. Að sögn Þórdísar Sigurðardóttur forstöðumanns sendiráðs Íslands í Kampala bárust beiðnir frá báðum héruðum um aðstoð, samtals að upphæð rúmlega 300 þúsund bandarískra dala, rúmlega 40 milljóna íslenskra króna.

„Buikwe hérað er eitt þeirra verst settu í landinu með tilliti til COVID-19 og í Namayingo er getan til að sporna gegn COVID-19 veik og mikil þörf fyrir aðstoð til að styrkja getu heilbrigðisstofna þar til að takast á við faraldurinn og styrkja viðbragðsgetu héraðsins,“ segir Þórdís en búnaðurinn sem var afhentur fyrr í mánuðinum samanstendur af hlífðarbúnaði, prófunarsettum, sótthreinsiefnum, súrefnishylkjum, rúmum, dýnum, hjólastólum, tjöldum og fleiru.

Að sögn Þórdísar fylgist sendiráðið í Kampala með og vaktar þennan stuðning eins og önnur verkefni sem studd eru fyrir fjármagn frá Íslandi í Úganda. „Fulltrúar sendiráðsins heimsóttu héruðin nýverið og fylgdust með innleiðingu stuðningsins. Fram kom að mikil ánægja er með þessa kærkomnu gjöf frá Íslandi, bæði meðal heilbrigðisstarfsmanna og héraðsstjórnvalda. Íslenskum stjórnvöldum og íslenskum skattborgurum voru sendar hlýjar þakklætiskveðjur.“

 

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum