Hoppa yfir valmynd
06.12. 2021 Utanríkisráðuneytið

Konur í Afganistan og Palestínu njóta góðs af jólagjöfum UN Women

Jólagjafir UN Women í ár eru neyðarpakki til konu í Afganistan og sálræn aðstoð til ekkju í Palestínu. 

„Jólagjafir UN Women njóta sívaxandi vinsælda. Þetta eru gjafirnar sem veita von og hjálpa konum að viðhalda reisn sinni í erfiðum aðstæðum. Margir panta jólagjafir UN Women og gefa gjafabréfið með sem jólakort í pakkann,“ segir Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi í fréttatilkynningu.  

Neyðarpakkinn inniheldur tíðavörur, tannbursta og tannkrem, sápu, þvottaefni, nærfatnað og handklæði. Þessi pakki auðveldar konum að viðhalda persónulegu hreinlæti við erfiðar aðstæður og minnkar um leið líkur á veikindum og takmarkar sýkingarhættu. 

„Við bjóðum einnig upp á fjölda annarra táknrænna jólagjafa. Ein þeirra vinsælustu er sálræn aðstoð, sem veitir konu sem misst hefur maka í átökunum í Palestínu þrjá sálfræðitíma. Sú gjöf kostar 3.500 krónur,“ bætir Stella við.

Táknrænar jólagjafir UN Women eru í formi fallegra gjafabréfa sem er annað hvort hægt að fá á stífum pappír eða í rafrænu formi. Gjafirnar fást á vefsíðu UN Women

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

5. Jafnrétti kynjanna
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum