Hoppa yfir valmynd
10.12. 2021 Utanríkisráðuneytið

Ísland tvöfaldar framlög í sjóð til stuðnings hinsegin fólks

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra. - mynd

Ísland mun tvöfalda framlög sín til Hnattræna jafnréttissjóðsins (Global Equality Fund) en sjóðurinn beinir stuðningi sínum sérstaklega að mannréttindum hinsegin fólks. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, tilkynnti um þetta á fundi Alþjóðamálastofnunar og Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands sem haldinn var í tilefni alþjóðlega mannréttindadagsins í dag. Framlagið til sjóðsins nam áður hundrað þúsund Bandaríkjadölum en verður tvö hundruð þúsund. 

Ráðherra tilkynnti jafnframt um stuðning Íslands við átaksverkefnið UN Free and Equal sem starfar innan skrifstofu mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna (OHCHR) og hefur að markmiði að berjast fyrir réttindum hinsegin fólks hvarvetna í heiminum. Verkefnið sér um upplýsingaherferðir í samvinnu við aðrar stofnanir Sameinuðu þjóðanna sem berjast fyrir afglæpavæðingu á samböndum hinsegin fólks og vinna gegn ofbeldi og mismunun á grundvelli kynhneigðar eða kynvitundar. 

„Sjóðurinn og átaksverkefnið vinna bæði mikilvæga vinnu við að auka vernd og réttindi hinsegin fólks,“ sagði ráðherra við tilefnið. 

Alþjóðlegi mannréttindadagurinn er haldinn 10. desember ár hvert en í dag eru 73 ár liðin síðan mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna var samþykkt. Af því tilefni buðu Alþjóðamálastofnun, Mannréttindastofnun Háskóla Íslands og utanríkisráðuneytið til umræðu um loftslagsbreytingar og mannréttindi í Veröld – húsi Vigdísar. „Baráttan fyrir mannréttindum er jafn mikilvæg í dag og fyrir meira en 70 árum. Á tímum heimsfaraldursins höfum við séð bakslag í þeirri baráttu á alþjóðavísu og því mikilvægara sem aldrei fyrr að standa vörð um grundvallarréttindi fólks,” sagði Þórdís Kolbrún meðal annars í ávarpi sínu

Þá áréttaði hún einnig mikilvægi þess að auka umræðu um áhrif loflagsbreytinga á mannréttindi: „Loftslagsbreytingar hafa víðtæk áhrif á líf fólks víða um heim, sér í lagi viðkvæmustu hópana. Ég fagna því aukinni umræðu á alþjóðavettvangi um áhrif loftslagsbreytinga á mannréttindi.”

 

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum