Hoppa yfir valmynd
28.12. 2021 Utanríkisráðuneytið

Tæplega fjögur hundruð látin á Filippseyjum

Staðfest er að 397 eru látin og 83 er enn saknað á Filippseyjum eftir fellibylinn Rai fór yfir eyjarnar 16. desember síðastliðinn. Rúmlega 530 þúsund manns eiga um sárt að binda eftir hörmungarnar og tugþúsundir hafast við í neyðarskýlum. Sameinuðu þjóðirnar hafa hrundið af stað fjársöfnun á grunni viðbragðsáætlunar upp á fjórtán milljarða íslenskra króna.

Fellibylurinn, sem heimamenn kalla Odette, olli miklum skaða í sex af sautján héruðum Filippseyja. Auk þeirra tæpra 400 íbúa sem fórust í fellibylnum slösuðust á annað þúsund og 630 þúsund lentu á vergangi. Um 200 þúsund hús skemmdust í ofaveðrinu. Óttast er að hópsmit COVID-19 fari sem eldur í sinu um neyðarskýli, sérstaklega í einu þeirra, þar sem alltof margir hafa leitað skjóls.

Neyðarsjóður Sameinuðu þjóðanna, CERF, úthlutaði þegar tólf milljónum Bandaríkjadala til hjálparstarfa á vegum ýmissa stofnana sameinuðu þjóðanna á vettvangi, eins og Barnahjálparinnar, UNICEF, Mannfjöldasjóðsins, UNFPA og Matvælaáætlunarinnar, WFP. Neyðarsjóðurinn er einn af fjórum áherslustofnunum og sjóðum Íslands í mannúðaraðstoð og Ísland greiðir árleg framlög til CERF samkvæmt rammasamningi. Sjóðnum er ætlað að grípa þegar inn í skyndilega neyð eins og á Filippseyjum í kjölfar fellibylsins.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

2. Ekkert hungur
3. Heilsa og vellíðan
13. Aðgerðir í loftslagsmálum

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum