Hoppa yfir valmynd
04.01. 2022 Utanríkisráðuneytið

Hafa ekki bæði efni á upphitun húsa og mat fyrir börnin

„Mæður tjáðu mér að á komandi vetri verði þær milli steins og sleggju, annað hvort þurfi þær að gefa börnum sínum að borða og láta þau frjósa, eða halda á þeim hita og láta þau svelta. Þær hafi ekki efni á bæði kyndingu og mat,“ sagði David Beasley framkvæmdastjóri Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) undir lok síðasta árs eftir heimsókn til Sýrlands. Stofnunin þarf yfir 500 milljónir Bandaríkjadala fyrir maí á þessu ári til að bregðast við neyðinni í landinu.

„Fleiri Sýrlendingar en nokkru sinni þurfa að velta fyrir sér hvernig þeir komast í gegnum daginn með tómum kæliskápum, minnkandi matarskömmum og mörkuðum fullum af vörum sem þeir hafa ekki lengur efni á að kaupa,“ segir í yfirlitsgrein frá WFP um hörmulegt ástand í Sýrlandi þar sem stofnunin veitti 5,7 milljónum íbúa matvælaaðstoð á nýliðnu ári.

Í mars síðastliðnum var þess minnst að stríðsátökin í Sýrlandi hefðu staðið yfir í heilan áratug. Þá gerði WFP ítarlega könnun á matvælaóörygginu í landinu sem leiddi í ljós að það hafði versnað til muna. Á aðeins einu ári höfðu 4,5 milljónir íbúa bæst í hóp þeirra sem höfðu vart til hnífs og skeiðar. Samtals 12,4 milljónir Sýrlendinga gátu ekki brauðfætt sig, fleiri en nokkru sinni fyrr.

„Eftir átök í áratug var lífsbaráttan harðari en áður fyrir meirihluta sýrlenskra fjölskyldna. Árið 2021 voru 6,8 milljónir manna á vergangi að berjast við að endurreisa tilveru sína eftir fjölda ára harmleik, óvissu og ólýsanlegan missi. Vonin um frið lifir en á sama tíma hafa margar fjölskyldur klárað sparifé sitt og geta ekki tekist á við efnahagskreppuna. Allt árið urðu nauðsynjar dýrari en áður og samtímis féll gengi sýrlenska pundsins. Fjölskyldur náðu ekki endum saman.“

Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) er ein af áherslustofnunum íslenskra stjórnvalda í mannúðaraðstoð. Þau veita kjarnaframlög til stofnunarinnar í formi mannúðaraðstoðar samkvæmt rammasamningi. Ísland svarar einnig neyðarköllum frá WFP eftir föngum.

  • $alt
  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

2. Ekkert hungur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum