Hoppa yfir valmynd
06.01. 2022 Utanríkisráðuneytið

Stríðsátök og þurrkar ógna lífi milljóna í Eþíópíu

Eþíópía er það land í heiminum þar sem þörf fyrir mannúðaraðstoð verður hvað mest í heiminum á þessu ári, að Afganistan undanskildu. Alþjóðlega björgunarnefndin – International Rescue Committe – birti í gær umfjöllun um grafalvarlegt ástand í landinu þar sem átök í norðri og þurrkar í suðri ógna lífi milljóna íbúa.

Rúmt ár er liðið frá því blóðug stríðsátök hófust í nyrsta héraði landsins, Tigray héraði, milli stjórnarhersins og frelsishreyfingar Tigray með tilheyrandi mannfalli og flótta rúmlega tveggja milljóna manna. Að mati Sameinuðu þjóðanna hangir líf 5,5 milljóna íbúa á bláþræði vegna matarskorts. Tugþúsundir íbúa hafa flúið yfir til Súdan og átökin hafa breiðst út til héraðanna Amhara og Afar þar sem 450 þúsund íbúar eru á hrakhólum.

Áhrif loftslagsbreytinga hafa sett líf fólks úr skorðum í suðurhluta landsins. „Við ferðumst langan veg til að sækja vatn sem er erfitt þegar hungrið sverfur að,“ segir Fatima, átta barna móðir sem missti lífsviðurværi sitt í þurrkum í Somali héraði. Í suðurhluta Eþíópíu eru að sögn OCHA – samhæfingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum – að minnsta átta milljónir íbúa sem þurfa á lífsbjargandi aðstoð að halda á árinu.

Þurrkarnir í sunnan og austanverðu landinu, í landbúnaðarhéruðunum Somali, Austur- og Suður-Oromia, hafa þegar haft hræðileg áhrif á líf bænda sem horfa fram á uppskerubrest vegna þurrka þriðja regntímabilið í röð.

OCHA gegnir lykilhlutverki í mannúðaraðstoð og neyðarviðbrögðum og stofnunin er ein af fjórum áherslustofnunum Íslands í mannúðaraðstoð.

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
13. Aðgerðir í loftslagsmálum
2. Ekkert hungur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum