Hoppa yfir valmynd
10.01. 2022 Utanríkisráðuneytið

Nær 90 prósent framlaga Íslands í þágu jafnréttismála

Ísland er í öðru sæti á lista Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, yfir þau ríki sem verja hlutfallslega mest af sínum framlögum til þróunarsamvinnu í verkefni sem stuðla að kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna og stúlkna. Samkvæmt úttekt þróunarsamvinnunefndar OECD (DAC) fara tæplega 90 prósent framlaga Íslands í tvíhliða þróunarsamvinnu til verkefna sem stuðla að kynjajafnrétti.

Íslensk stjórnvöld hafa um árabil lagt áherslu á að verkefni og framlög, bæði í tvíhliða eða fjölþjóðlegri þróunarsamvinnu, styðji við jafnrétti kynjanna og bæti stöðu stúlkna og kvenna. Jafnrétti kynjanna og valdefling kvenna og stúlkna er sett í öndvegi í þróunarsamvinnustefnu Íslands fyrir tímabilið 2019-2023 og er sett fram sem sérstakt markmið auk þess sem lögð verður frekari áhersla á samþættingu kynjasjónarmiða í verkefni og framlög til þróunarsamvinnu. Í tvíhliða þróunarsamvinnu í Malaví, Úganda og Síerra Leóne hafa kynjasjónarmið til að mynda verið samþætt í verkefni á sviði mæðra- og ungbarnaheilsu, menntamála, vatns- og hreinlætismála og friðar- og öryggismála.

Í úttekt þróunarsamvinnunefndar OECD (DAC) yfir fjármögnun í þágu kynjajafnréttis og valdeflingu kvenna fyrir árið 2021 kemur fram að framlög í þágu jafnréttismála í tvíhliða þróunarsamvinnu hafa hækkað jafnt og þétt undanfarin ár og hafa aldrei verið hærri. Á árunum 2018-2019 fóru um 44,5 prósent framlaga DAC ríkjanna í verkefni sem stuðla að kynjajafnrétti.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

5. Jafnrétti kynjanna
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum