Hoppa yfir valmynd
21.01. 2022 Utanríkisráðuneytið

Annar eldsvoði ársins í flóttamannabúðum Rohingja

Ljósmynd: UN Women - mynd

Mikill eldsvoði varð í Cox‘s Bazar flóttamannabúðunum í Bangladess síðastliðinn sunnudag. Búðirnar eru heimili þúsunda Rohingja sem flúið hafa ofsóknir og fjöldamorð í nágrannaríkinu Mjanmar. Þetta er í annað sinn á árinu sem eldur brýst út í Cox‘s Bazar.

Eldsins varð fyrst vart seinni part sunnudags og var fljótur að breiðast út um búðirnar, sem eru meðal fjölmennustu flóttamannabúða heims. Engin dauðsföll hafa verið tilkynnt en einhverjir slösuðust í eldinum. Upptök eldsins eru enn ókunn.

„Ýmsar stofnanir Sameinuðu þjóðanna hafa brugðist við og hafa veitt íbúum búðanna neyðaraðstoð, matvæli, vatn, hreinlætisvörur og sæmdarsett. Stærsta verkefnið nú er að endurreisa búðirnar svo hægt sé að koma fólki í skjól, en kalt er á svæðinu á þessum tíma árs,“ segir í frétt frá UN Women.

Mikill eldsvoði varð í flóttamannabúðunum 2. janúar þar sem þjónustumiðstöð og spítali rekinn af Alþjóðlegu fólksflutningastofnuninni (IOM) eyðilagðist, auk annarra bygginga.

Eldhætta er mikil í búðunum vegna þéttrar byggðar og ófullnægjandi húsnæðis og eldunaraðstöðu. Af þeim rúmlega milljón Rohingjum sem flúið hafa ofsóknir og fjöldamorð mjanmarska hersins búa um 600 þúsund þeirra í Cox‘s Bazar. Meirihluti þeirra eru konur og börn.

UN Women og aðrar stofnanir Sameinuðu þjóðanna ítreka að þó mikil þörf sé á matvælaaðstoð til íbúa búðanna sé einnig gríðarlega mikilvægt að koma til þeirra nauðsynjum á borð við hreinlætisvörur, þvottaefni og fatnaði svo hægt sé að tryggja persónulegt hreinlæti og öryggi.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
5. Jafnrétti kynjanna
16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum