Hoppa yfir valmynd
26.01. 2022 Utanríkisráðuneytið

Styrkur til mannúðaraðstoðar í Afganistan

Ljósmynd: UNHCR/Andrew McConnell - mynd

Hjálparstarf kirkjunnar hlaut á dögunum tuttugu milljóna króna styrk frá utanríkisráðuneytinu til að veita mannúðaraðstoð í Afganistan í samstarfi við Christian Aid. „Markmiðið er að spyrna við og veita almenningi stuðning til að tryggja fæðuöryggi, húsaskjól og vernda börn, sérstaklega stúlkur. SVegna hrikalegar slæmrar efnahagsstöðu eftir að Talibanar tóku völdin má segja að matarskortur og óöryggi almennt sé algjört og mannréttindi fótumtroðin,“ segir Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar.

Stríðsátök og óeirðir hafa geisað í Afganistan í tæplega fjóra áratugi og ástandið í landinu hefur farið versnandi á undanförnum mánuðum með vaxandi fátækt, verðhækkunum og matvælaskorti. Að sögn Bjarna hafa Sameinuðu þjóðirnar og alþjóðsamfélagið ítrekað mikilvægi þess að viðhalda flæði fjármagns og mannúðaraðstoðar til Afganistan til að vernda það sem unnist hefur í þróunarstarfi undanfarna áratugi og til að koma í veg fyrir algjöra hnignun í landinu.

„Markmiðið er að létta á afleiðingum í kjölfar yfirtöku talibana í Afganistan, tryggja húsaskjól og fæðuöryggi sem og aðgengi að vatni og hreinlætisaðstöðu fyrir fólk í landinu,“ segir Bjarni. „Stuðningurinn miðar einnig að því að auka viðnámsþrótt og velferð barna og fullorðinna. Áætlað er að ná til um 21 þúsund einstaklinga hvað varðar skjól og húsbúnað, 14 þúsund hvað varðar lífsviðurværi, 33 þúsund vegna fæðuöryggis og um 28 þúsund einstaklinga vegna vatns- og hreinlætismála. Þörfin við að aðstoða konur er sérstaklega brýn þar sem Talibanar, sem tóku við stjórn landsins á síðasta ári, munu nánast þurrka út framfarir sem orðið hafa á réttindum kvenna síðustu tuttugu árin,“ segir hann.

Verkefnið er hluti af mannúðarákalli ACT Alliance, samtaka hjálparstarfs kirkna.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
2. Ekkert hungur
3. Heilsa og vellíðan
6. Hreint vatn og hreint
5. Jafnrétti kynjanna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum