Hoppa yfir valmynd
07.02. 2022 Utanríkisráðuneytið

Ellefu börn látast í Sýrlandi af völdum vetrarkulda og átaka

Ljósmynd: UNICEF - mynd

Að minnsta kosti sex börn létust og eitt særðist alvarlega í átökum í landamærabænum Athmeh í norðvesturhluta Sýrlands í síðustu viku. Önnur fimm börn hafa látist í vetrarhörkum síðustu tvær vikur.

Bertrand Bainvel, starfandi yfirmaður UNICEF í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku, segir áhyggjuefni hversu harðnandi átök fara í og við Idlib í norðvesturhluta Sýrlands það sem af er ári. Á svæðinu búi 1,2 milljónir barna sem þegar þurfi mikla aðstoð. Margar fjölskyldur eru á vergangi eftir að hafa neyðst til að flýja átök annars staðar frá í landinu.

„Á síðasta ári áttu 70 prósent þeirra alvarlegu réttindabrota gegn börnum sem skráð voru í Sýrlandi sér stað í norðvesturhluta landsins. Þessi auknu átök nú verða í óvenju hörðum og köldum vetraraðstæðum hér. Metfrost hefur mælst í landshlutanum sem og víðar í Sýrlandi. Að minnsta kosti fimm sýrlensk börn hafa látist í norðurhluta Sýrlands bara á síðustu tveimur vikum vegna vetrarhörkunnar,“ segir Bainvel.

Nú eru næstum ellefu ár frá því stríðið í Sýrlandi hófst. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur veitt milljónum barna frá Sýrlandi neyðaraðstoð síðan stríðið hófst. Það hefði ekki verið hægt án víðtæks stuðnings almennings um allan heim, þar á meðal á Íslandi – bæði frá Heimsforeldrum og þeim sem stutt hafa neyðarsöfnun UNICEF.

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum