Hoppa yfir valmynd
15.02. 2022 Utanríkisráðuneytið

Bráðavannæring og barnaþrælkun eykst í Afganistan

Ljósmynd: UNICEF - mynd

Allt að fimmtungur fjölskyldna í Afganistan hefur neyðst til þess að senda börn sín til vinnu vegna tekjuhruns síðastliðið hálft ár, frá valdatöku Talibana í landinu. Að mati alþjóðasamtakanna Save the Children – Barnaheill er um ein milljón barna í nauðungarvinnu, barnaþrælkun, og önnur milljón barna býr samkvæmt upplýsingum frá UNICEF við bráðavannæringu.

Save the Children gerði nýlega könnun á fjórtán hundruð heimilum í sjö héruðum Afganistan. Hún sýnir að 82 prósent heimila hafa misst stóran hluta tekna sinna frá valdaskiptunum í ágúst síðastliðnum, þar af kváðust 18 prósent foreldra ekki eiga annarra kosta völ en að senda börnin til vinnu. Miðað við að einungis eitt barn í hverri fjölskyldu sé þröngvað til vinnu reiknast Save the Children til að rúmlega milljón barna í landinu sé í ánauð vinnuþrælkunar.

Samkvæmt könnuninni hefur rúmlega þriðjungur aðspurðra misst allar tekjur heimilisins og rúmur fjórðungur misst meira en helming tekna. Fjölskyldur í borgum hafa orðið hvað harðast úti og helmingur fjölskyldna í höfuðborginni Kabúl kvaðst engar tekjur hafa.

Verð á matvælum hefur hækkað mikið vegna efnahagskreppunnar í landinu og leitt til þess að margar fjölskyldur hafa ekki efni á mat. Um 36 prósent fjölskyldna greindu frá því að matur væri keyptur fyrir lánsfé og 39 prósent kváðust fá lánaðan mat frá betur stæðum fjölskyldum.

UNICEF telur að ríflega þrettán milljónir barna þurfi á mannúðaraðstoð að halda og rúmlega milljón við bráðavannæringu. „Meira en helmingur heimila glímir við margþætta fátækt og grunnþjónusta hins langhrjáða ríkis er í molum. Erfiður og kaldur vetur, náttúruhamfarir og neyðarástand í efnahagsmálum þjóðarinnar hefur enn aukið byrði barna sem nú þurfa aðstoð sem aldrei fyrr. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur verið að störfum í Afganistan í 65 ár og mun aldrei gefast upp við að tryggja réttindi barna í Afganistan, skjól, hreint vatn, næringu og aðstoð,“ segir í frétt frá UNICEF.

Ákall fyrir Afganistan – neyðarsöfnun UNICEF

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

2. Ekkert hungur
3. Heilsa og vellíðan
16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum