Hoppa yfir valmynd
17.02. 2022 Utanríkisráðuneytið

Annað fárviðri á skömmum tíma skekur Madagaskar

Ljósmynd frá Madagaskar: UN Women - mynd

Mikil neyð ríkir í Madagaskar eftir að fellibylurinn Batsirai reið yfir eyjuna í síðustu viku en í fárviðrinu fórust 120 íbúar. Þetta er annar fellibylurinn sem skellur á landinu á innan við tveimur vikum. UN Women vekur athygli á því að fellibylurinn hafi valdið miklu tjóni á eignum, innviðum og ræktarlandi á eyjunni, þar sem um 77 prósent íbúanna lifa þegar undir fátækramörkum.

Sameinuðu þjóðirnar segja gríðarlega mikilvægt að koma matvælum, vistum og hreinlætisvörum til íbúa á hamfarasvæðinu, en fellibylurinn eyðilagði um 17 þúsund heimili. Um 120 þúsund íbúar eiga í engin hús að venda.

Hitabeltisstormurinn Ana fór yfir suðausturströnd Afríku 24. janúar og olli bæði manntjóni og eignatjóni í Mósambík, Madagaskar og Malaví. Alls létust um 90 manns en mikil flóð fylgdu storminum sem lögðu híbýli, vegi og ræktarland í rúst.

Stormurinn hafði gríðarleg áhrif á líf og heilsu um 200 þúsund íbúa, þar af um fimm þúsund barnshafandi kvenna sem þurfa nauðsynlega á áframhaldandi heilbrigðisþjónustu að halda. „Til að bregðast við þörfinni hafa stofnanir Sameinuðu þjóðanna komið á fót heilsugæslum á hjólum sem reyna að sinna þörfum óléttra kvenna sem búsettar eru á hamfarasvæðunum sem hafa einangrast sökum flóða,“ segir í frétt UN Women.

Þar segir enn fremur að UN Women og UNFPA hafi dreift sæmdarsettum til kvenna á hamfarasvæðum Mósambík. „Þegar fólk hefur misst allt sitt í kjölfar náttúruhamfara er mikilvægt að geta tryggt konum sértæka neyðaraðstoð og hreinlætisvörur á borð við tíðarvörur, nærfatnað, sápu, tannkrem og tannbursta svo þær geti viðhaldið reisn og persónulegu hreinlæti,“ segir UN Women.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
13. Aðgerðir í loftslagsmálum
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum