Hoppa yfir valmynd
18.03. 2022 Utanríkisráðuneytið

Ísland bætir hreinlætisaðstöðu í skólum í Úganda

Ljósmynd: gunnisal - mynd

Ísland hefur ákveðið að styrkja UNICEF í Úganda um 40 milljónir króna í þeim tilgangi að sporna gegn útbreiðslu kórónuveirunnar með því að bæta hreinlætisaðstöðu í 600 ríkisreknum grunn- og framhaldsskólum í landinu. Skólar í Úganda voru opnaðir í janúar eftir tveggja ára lokun.

„Ísland leggur áherslu á að styðja aðgerðir til að útrýma sjúkdómum, ólæsi og fátækt. Í Úganda hefur COVID-19 heimsfaraldurinn haft neikvæð áhrif á heilsu, nám og lífsviðurværi samfélaga, ekki síst stúlkur. Í samræmi við tilmæli heilbrigðisyfirvalda leggjum við áherslu á handþvott með sápu til verndar börnum gegn niðurgangspestum og öndunarfærasýkingum, meðal annars kórónuveirunni. Bætt hreinlætisaðstaða bætir skólasókn sem leiðir til aukins þroska barna,“ segir Þórdís Sigurðardóttir forstöðumaður sendiráðs Íslands í Kampala.

Auk endurbóta á hreinlætisaðstöðu kostar Ísland gerð veggspjalda sem minna nemendur skólanna á mikilvægi persónulegra sóttvarna, handþvottar með sápu og hreinu vatni.

„Mannréttindi eru áhersluatriði í stefnu Íslands í þróunarsamvinnu og UNICEF gegnir mikilvægu hlutverki við að stuðla að réttindum og velferð barna í heim allan. Við erum ánægð með að leggja okkar af mörkum til þessa verkefnis UNICEF til að bæta hreinlætisaðstöðu í fyrrnefndum 600 skólum,“ segir Þórdís.

„Í Úganda hafa skólar verið opnir í tvo mánuði og til að tryggja áframhaldandi starfsemi þeirra er mikilvægt að fjárfesta í sýkingavörnum og eftirliti með fullnægjandi vatni, hreinlætis- og salernisaðstöðu. Þannig getum við takmarkað útsetningu fyrir sjúkdómum og smitum meðal nemenda, kennara og annarra starfsmanna skólanna. Með þessari viðbótarfjárveitingu frá íslenskum stjórnvöldum stuðlar UNICEF að því að draga úr sjúkdómum í skólum landsins, bæði vatnsbornum sjúkdómum og þeim sem tengjast ófullnægjandi hreinlæti,“ segir Munir Safieldin fulltrúi UNICEF í Úganda.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

6. Hreint vatn og hreint
4. Menntun fyrir öll
3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum