Hoppa yfir valmynd
21.03. 2022 Utanríkisráðuneytið

UNICEF: Tæplega níu hundruð tonn af hjálpargögnum til Úkraínu

Ljósmynd: UNICEF - mynd

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur nú sent 85 flutningabíla með 858 tonn af hjálpargögnum til Úkraínu og nágrannaríkja. Alls fóru 780 tonn inn í Úkraínu en afgangurinn til nærliggjandi ríkja sem tekið hafa á móti mörgum flóttamönnum síðustu vikur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá UNICEF og þar segir að meiri hjálpargögn séu nú þegar á leiðinni. 

Vörubílarnir eru drekkhlaðnir af nauðsynlegum sjúkragögnum, lyfjum og öðru sem skortur er á, hreinlætisvörum, skólagögnum, barnvænni afþreyingu fyrir börn og ungmenni, að ógleymdum hlýjum teppum og vetrarfatnaði, svo fátt eitt sé nefnt.

UNICEF á Íslandi hefur staðið fyrir neyðarsöfnun vegna verkefna UNICEF í og við Úkraínu frá því innrásin hófst. UNICEF hafði þar áður verið að störfum í átta ár á átakasvæðum í austurhluta Úkraínu, en við innrásina þurfti að róa að því öllum árum að bregðast við á vettvangi um allt land og við nærliggjandi landamæri. Í frétt UNICEF segir að stuðningur almennings, fyrirtækja og samstarfsaðila hér á landi við neyðarsöfnun hafi verið aðdáunarverður og tugir milljóna hafi safnast.  

Í fréttinni er Heimsforeldrum hrósað og sagt að mánaðarleg framlög þeirra tryggi getu UNICEF til að vera til staðar þar sem neyðin er mest og sveigjanleika til að bregðast skjótt við þegar ófriður og skálmöld skellur á, líkt og gerðist í Úkraínu í síðasta mánuði.

„Íslendingar eiga heimsmet í fjölda Heimsforeldra miðað höfðatölu og telur hvert eitt og einasta framlag til góðra verka UNICEF í þágu réttinda barna um allan heim. Því gleymum ekki að þrátt fyrir það grettistak sem UNICEF hefur að undanförnu lyft í Úkraínu þá er UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, með starfsemi í yfir 190 löndum og er á vettvangi margra stríða. Þar, nær og fjær, skiptir stuðningur þinn máli." 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum