Hoppa yfir valmynd
05.04. 2022 Utanríkisráðuneytið

Íslenskur sérfræðingahópur á sviði fiskveiða skoðar samstarf í Síerra Leóne

Sérfræðingahópur með Emmu Kowa Jalloh  sjávarútvegsráðherra fyrir miðju. - mynd

Utanríkisráðuneytið hefur á síðustu misserum unnið að undirbúningi að auknu tvíhliða þróunarsamstarfi við Síerra Leóne en eitt helsta markmiðið er að vinna með stjórnvöldum að nýju verkefni á sviði fiskimála og bláa hagkerfisins. Á dögunum fóru fulltrúar ráðuneytisins og fulltrúar stofnana á sviði fiskimála til Síerra Leóne til þess að greina möguleika og tækifæri í frekara samstarfi.

Fiskveiðar eru mikilvægur þáttur í atvinnulífi Síerra Leóne. Á annað hundruð þúsund einstaklingar starfa við veiðar og vinnslu og um hálf milljón íbúa byggir afkomu sína að fullu eða að hluta á fiskveiðum. Fiskur er stór þáttur í neyslu almennings og mikilvægur fyrir fæðuöryggi í landinu. Vaxtarmöguleikar eru taldir umtalsverðir í greininni en þörf er á öflugri fiskveiðistjórnun og eftirliti. Álag er einnig á fiskistofna og ólöglegar veiðar erlendra skipa umtalsvert vandamál.

Í ferðina til Síerra Leóne fóru fulltrúar Fiskistofu, Hafrannsóknarstofnunar, MATÍS og Sjávarútvegsskóla GRÓ. Þeir áttu ásamt fulltrúum utanríkisráðuneytisins fund með Emmu Kowa Jalloh sjávarútvegsráðherra landsins og öðrum fulltrúum ráðuneytisins. Einnig voru fundir haldnir með öðrum fulltrúum samstarfsríkja og stofnana sem starfað hafa að fiskimálum.

Enn fremur voru haldnir vinnufundir þar sem fulltrúar Síerra Leóne kynntu fyrir hópnum áherslur sínar og íslensku stofnanirnar kynntu nálganir sínar. Þá heimsótti hópurinn tvö fiskiþorp þar sem góð innsýn fékkst í smábátaveiðar og vinnu kvenna sem starfa í kringum virðiskeðju fiskveiða. Sérfræðingahópurinn heldur nú áfram vinnu með ráðuneytinu við að skilgreina mögulegt samstarfsverkefni.

Vonir standa til þess að seinni hluta ársins geti farið af stað nýtt verkefni á sviði fiskimála og bláa hagkerfisins í Síerra Leóne, þar sem íslensk þekking nýtist við tækniaðstoð og þjálfun.

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

8. Góð atvinna og hagvöxtur
2. Ekkert hungur
14. Líf í vatni
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum