Hoppa yfir valmynd
19.04. 2022 Utanríkisráðuneytið

Grafalvarlegt ástand vegna þurrka á horni Afríku

Ljósmynd frá Kenía: WFP/Arete/ Fredrik Lerneryd - mynd

Engin teikn eru á lofti um úrkomu í þeim heimshluta sem kenndur er við horn Afríku. Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna, WFP, óttast að hungruðum fjölgi þar á árinu úr fjórtán milljónum í tuttugu. Miðað við hefðbundið árferði ætti rigningartíminn að hafa staðið yfir í tæpan mánuð en alla daga er heiður himinn.

Alvarlegast er ástandið í Sómalíu þar sem hungursneyð vofir yfir. Í Kenía býr um hálf milljón íbúa við sult og vannæring er víða í Eþíópíu og fer vaxandi.

„Af fyrri reynslu vitum við hversu mikilvægt er að bregðast skjótt við þegar mannúðarástand versnar hratt en geta okkar til að bregðast við er takmörkuð vegna skorts á fjármagni,“ segir Michael Dunford, svæðisstjóri WFP í austanverðri Afríku. „Við höfum líkt og margar aðrar mannúðarstofnanir varað við því um margra mánaða skeið og þurrkar í þessum heimshluta gætu orðið hrikalegir,“ segir hann.

Innrás Rússa í Úkraínu eykur líkur á útbreiddu og alvarlegu hungri í Afríku. Matvælaverð hefur rokið upp síðustu vikur og verð á eldsneyti sömuleiðis. Íbúar þurrkasvæðanna á horni Afríku eru taldir í mestri hættu að finna fyrir áhrifum innrásarinnar vegna þess að þeir treysta á innflutning á hveiti frá löndunum við Svartahafið. Matarkarfan hefur hækkað um tugi prósenta, mest í Eþíópíu um 66 prósent, og flutningskostnaður hefur í sumum tilvikum tvöfaldast frá áramótum.

Langvarandi þurrkar einkenndu þennan heimshluta árin 2016 og 2017 en þá tókst með snemmbúnum aðgerðum að bjarga mannslífum og afstýra yfirvofandi hungursneyð. Að sögn WFP eru aðrar og verri aðstæður í dag vegna fjárskorts og því er óttast að ekki verði unnt að grípa í taumana í tæka tíð sem kann að hafa skelfilegar afleiðingar.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

2. Ekkert hungur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum