Hoppa yfir valmynd
09.05. 2022 Utanríkisráðuneytið

UNICEF fordæmir enn eina árásina á skóla í Úkraínu

Ljósmynd: UNICEF - mynd

„UNICEF fordæmir harðlega enn eina árás á skóla í Úkraínu sem ljóst var að almennir borgarar, þar á meðal börn, höfðu leitað skjóls í,“ segir Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, í yfirlýsingu. Greint var frá því um helgina að minnst sextíu sé saknað eftir loftárásir rússneska hersins á skólabyggingu í Luhansk í Úkraínu. Óttast er um afdrif þeirra sem þar héldu til.

„Við vitum ekki enn hversu mörg börn kunna að hafa látið lífið eða særst í árásinni, en við óttumst hið versta. Að árásin hafi fjölgað enn í hópi þeirra hundruð barna sem látið hafa lífið í þessu stríði. Fjölskyldur sem urðu fyrir árásinni hefðu undir eðlilegum kringumstæðum átt að vera að halda upp á Mæðradaginn, ekki að syrgja ástvini sína,“ segir Russell.

„Skólar eiga aldrei, undir nokkrum kringumstæðum, að vera skotmörk í stríðsrekstri. Að beina árásum að almennum borgurum og stofnunum þeirra er gróft brot á alþjóðlegum mannúðarlögum. Þessi síðasta árás er aðeins eitt af fjölmörgum dæmum sem við höfum þegar séð í þessu stríði þar sem líf og réttindi almennra borgara eru virt að vettugi.“

Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum