Hoppa yfir valmynd
27.07. 2022 Utanríkisráðuneytið

Námskeið fyrir kennara um heimsmarkmiðin

Ljósmynd: gunnisal - mynd

Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi stendur fyrir námskeiði fyrir kennara um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Námskeiðið verður haldið 11. ágúst í Salaskóla í Kópavogi frá kl. 9-12.

Á námskeiðinu, sem ætlað er fyrir kennara leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, verður farið í merkingu og markmið heimsmarkmiðanna og og hvernig hægt er að nýta þau í námi. Þátttakendur á námskeiðinu fá í hendur tæki og tól til að nýta með markvissum hætti.

Kennari á námskeiðinu er Eva Harðardóttir sem býr yfir mikilli þekkingu á heimsmarkmiðunum og hefur meðal annars byggt námskeið sín á þeim grunni. Eva er uppeldis- og menntunarfræðingur og stundar doktorsnám við Háskóla Íslands. Rannsóknaráhersla hennar í doktorsnámi snýr að ungu flóttafólki og alþjóðlegri borgaravitund. Eva hefur starfað sem aðjúnkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og hefur kennt fjölmörg námskeið m.a. um lýðræði, mannréttindi og borgaravitund ungs fólks. Eva starfaði sem menntunarsérfræðingur á vegum UNICEF í Malaví frá 2013-2016.

Námskeiðsgjald er kr. 5.000 og hægt er að sækja um styrk frá Kennarasambandi Íslands. Skráning sendist á [email protected].

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum