Utanríkisráðuneytið
75 ára aðildarafmæli að Sameinuðu þjóðunum: Hjartfólgnasta von mannkynsins
19.11.2021 10:47Í dag fagnar Ísland 75 ára aðildarafmæli að Sameinuðu þjóðunum. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna...
Íslendingar hlutu fullveldi með sambandslagasamningnum árið 1918 og fengu þá í hendur yfirstjórn utanríkismála. Danska utanríkisþjónustan fór með framkvæmd þeirra meðan samband Íslands og Danmerkur hélst en í umboði Íslendinga sem höfðu æðsta vald á þessu sviði. Árið 1920 var stofnað Íslenskt sendiráð í Kaupmannahöfn undir stjórn sendiherra sem varð ekki aðeins fulltrúi Íslands gagnvart Danmörku heldur jafnframt farandsendiherra sem annaðist erindrekstur fyrir ríkisstjórn Íslands í ýmsum löndum, líkt og Pétur J. Thorsteinsson rekur í sögulegu yfirliti sínu um utanríkisþjónustu Íslands og utanríkismál. Eftir því sem leið á sambandslagatímabilið færðust ýmsir þættir í meðferð utanríkismála í vaxandi mæli í hendur Íslendinga. Þann 10. apríl 1940 tók Ísland meðferð utanríkismála alfarið í eigin hendur. Þessi vefur var settur upp í tilefni af 80 ára afmæli utanríkisþjónustunnar árið 2020 en þá fagnaði sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn jafnframt aldarafmæli.
Utanríkisráðuneytið
Í dag fagnar Ísland 75 ára aðildarafmæli að Sameinuðu þjóðunum. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna...
Utanríkisráðuneytið
Á þessum tímamótum minnumst við þess að nú eru 80 ár frá þessari frægu för Esju frá Petsamo til...
Utanríkisráðuneytið
Í sjöunda þætti utanríkisvarpsins ræðir Sveinn H. Guðmarsson um Atlanthsafsbandalagið við Hermann...
Utanríkisráðuneytið
Í sjötta þætti Utanríkisvarpsins er rætt við Davíð Loga Sigurðsson deildarstjóra hjá Alþjóða og...
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.