Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

26. september 2019 Guðlaugur Þór Þórðarson

Getum verið stolt af okkar verki í mannréttindaráðinu

Á morgun lýkur 42. fundarlotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, fjórðu og síðustu reglubundnu lotunni sem Ísland tekur þátt í sem fullgildur meðlimur. Ísland situr þó áfram í ráðinu til loka ársins og tekur þátt í öðrum störfum þess, s.s. fyrirtöku allsherjarúttekta á mannréttindamálum í einstökum ríkjum í nóvember. Þá er fulltrúi Íslands varaforseti ráðsins og áfram í nægu að snúast. 

Ísland og fulltrúar þess hafa með störfum sínum í ráðinu sýnt rækilega fram á að smáríki geta látið til sín taka í þágu mannréttinda hafi þau algild mannréttindi í forgrunni og sýni frumkvæði. Ég er ekki einn um þessa skoðun, virtustu mannréttindasamtök heimsins hafa ítrekað vakið athygli á frammistöðu Íslands og vinir okkar á Norðurlöndum hafa tekið í sama streng. 

Í mars síðastliðnum var Ísland í forystu 36 ríkja sem fluttu sameiginlega yfirlýsingu vegna mannréttindaástands í Sádi-Arabíu. Yfirlýsingunni var svo fylgt eftir í lotunni sem nú er að ljúka. Þetta var í fyrsta skipti sem fjallað var um stöðuna í Sádi-Arabíu með svo afgerandi hætti í mannréttindaráðinu.  

Ekki vakti síður athygli þegar mannréttindaráðið samþykkti í júlí ályktun Íslands um mannréttindaástand á Filippseyjum. Um það mál, eins og frumkvæði okkar varðandi Sádi-Arabíu, hefur verið fjallað á innlendum og erlendum vettvangi með þeim hætti að fyllsta ástæða er fyrir okkur að bera höfuðið hátt. Átakanlegt var að hlusta á fulltrúa filippeysku kirkjunnar og ástvini þeirra sem hafa látist í svonefndu fíkniefnastríði filippeyskra stjórnvalda þegar þeir komu hingað til lands fyrir skemmstu. Full ástæða er til að óháð rannsókn fari fram á þessu máli. 

Ég hef gagnrýnt það sérstaklega að ríki á borð við Sádi-Arabíu hafa í gegnum tíðina sloppið við gagnrýni í mannréttindaráðinu á meðan önnur eru þar stöðugt undir smásjánni. Sem dæmi má nefna Ísrael. Ekkert ríki ætti að vera stikkfrí í þessum málum, en hins vegar má gera kröfu um að kjörin aðildarríki ráðsins gangi á undan með góðu fordæmi. Þess vegna skýtur skökku við að einmitt um þessar mundir eru bæði Filippseyjar og Sádi-Arabía kjörnir fulltrúar í mannréttindaráðinu og nú lítur út fyrir að Venesúela verði kosið aftur í ráðið í október. Framganga þessara ríkja í mannréttindamálum sendir einfaldlega röng skilaboð.  
Mannréttindaráðið er ekki gallalaus stofnun, en einmitt þess vegna höfum við viljað stuðla að umbótum og hefur öll okkar framganga miðast við það. 

 

Mikil breidd í starfinu

Önnur ályktun sem Ísland lagði fram ásamt fleiri ríkjum í sumar sneri að jöfnum launum karla og kvenna. Hún var samþykkt án atkvæðagreiðslu og voru meðflutningsríki ályktunarinnar á sjöunda tug. Við erum stolt af því að ályktun um kynjajafnréttistengd mál hafi náð fram að ganga.  

Þá er ástæða til að nefna að forsætisráðherra ávarpaði mannréttindaráðið í júnílotunni og fyrr á árinu tók félags- og barnamálaráðherra þátt í umræðum um málefni barna. Í byrjun þessa mánaðar kom svo hingað til lands í mínu boði sjálfstæður sérfræðingur Sameinuðu þjóðanna um málefni hinsegin fólks. Hann flutti bæði opinberan fyrirlestur og fundaði með fagfólki, s.s. á sviði heilbrigðismála, fulltrúum Samtakanna 78 og biskupi Íslands. Við metum nú góðar ábendingar hans um hvernig við getum gert enn betur hér heima í málefnum hinsegin fólks og um leið verið öflug rödd á alþjóðavettvangi á þessu sviði.  

Allt þetta sýnir breidd þess starfs sem við höfum staðið fyrir á árinu. Við höfum komið víða við og látið til okkar taka en þó ætíð út frá skýrt afmarkaðri áætlun um að standa við þau fyrirheit sem við gáfum í upphafi. Við eigum eftir að gera betur upp setuna í mannréttindaráðinu en vilji minn stendur til þess að á næstu mánuðum fari fram upplýst umræða um framgöngu okkar og árangur, um mannréttindaráðið sem stofnun, og auðvitað um mannréttindi almennt. Með því getum við skerpt enn stefnu okkar í þessum efnum og byggt á henni til framtíðar. 

Greinin birtist í Fréttablaðinu 26. september 2019
 

 

 

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum