Hoppa yfir valmynd
7. febrúar 2022 Utanríkisráðuneytið

UNICEF fær stuðning til að hraða dreifingu bóluefna í þróunarríkjum

Utanríkisráðuneytið mun verja 250 milljónum króna til að styðja við starfsemi Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) til að hraða dreifingu og aðgengi að COVID-19 bóluefnum í þróunarríkjum. Ísland hefur tekið virkan þátt í alþjóðlegum aðgerðum til stuðnings baráttu þróunarríkja gegn heimsfaraldrinum og áhrifum hans en auk framlagisins til UNICEF hafa stjórnvöld veitt rúmum milljarði króna til COVAX bóluefnasamstarfsins. 

„Alþjóðlegt samstarf um jafnan og sanngjarnan aðgang að bóluefni gegn COVID-19 og dreifingu þeirra á heimsvísu hefur skipt sköpum. UNICEF gegnir þar mikilvægu hlutverki og býr að dýrmætri reynslu um framkvæmd bólusetninga í þróunarlöndum,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra. 

Framlag Íslands til UNICEF er undir formerkjum alþjóðlega bóluefnasamstarfsins ACT-A (Access to COVID-19 Tools Accelerator) en þar gegnir stofnunin lykilhlutverki í því að tryggja að bóluefni sem fjármögnuð eru í gegnum samstarfið komist á leiðarenda. Stofnunin sér um flutning á bóluefnum innan þróunarríkja, tæknilega aðstoð við framkvæmd bólusetninga, stuðning við heilbrigðisstarfsfólk og stofnanir, ásamt almenningsfræðslu um bóluefnin. 

Ísland hefur einnig stutt einstök verkefni í samstarfsríkjum í tvíhliða þróunarsamvinnu til að sporna gegn víðtækum samfélagslegum og efnahagslegum áhrifum heimsfaraldursins.   

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
17. Samvinna um markmiðin
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum