Um sendiskrifstofu
Fastanefnd Íslands í Vín hóf starfsemi frá árinu 1999 gengt hlutverki fastanefndar Íslands gagnvart Öryggis- og Samvinnustofnun Evrópu (ÖSE/OSCE). Frá 7. maí 2001 var fastanefndin einnig sendiráð gagnvart Austurríki og sex öðrum löndum sem flest eru í Mið-Evrópu, þ.e. Tékklandi, Slóvakíu, Ungverjalandi, Bosníu og Hersegóvínu, Makedóníu og Slóveníu, en lokaði sendiráðsstarfsemi 1. maí 2018.
Síðan 1. maí 2018 gegnir sendiskrifstofan mikilvægu hlutverki sem fastanefnd Íslands gagnvart ÖSE, skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Vín (UNOV), Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni (IAEA) og skrifstofu undirbúningsnefndar samningsins um allsherjarbann við tilraunum með kjarnorkuvopn (CTBTO).
Fastanefndin er staðsett í 1. hverfi Vínar á Naglergasse 2/8. Næstu lestarstöðvar eru Herrengasse (U3) og Stephansplatz (U1 og U3).
Fastanefnd Íslands í Vín
HeimilisfangNaglergasse 2/3/8
1010 Wien
Sími: +43 1 533 2771
Netfang
Afgreiðsla virka daga frá kl. 09:00 - 16:00
Fastanefnd Íslands í VínTwitte hlekkur