Hoppa yfir valmynd
2. febrúar 2018

Aðalfundur félagsins France-Islande

Aðalfundur félagsins France-Islande fór fram í sendiherrabústaðnum í París laugardaginn 27. janúar og var hann vel sóttur. Farið var yfir starfsemi félagsins og ný stjórn kjörin. Að fundi loknum var viðstöddum boðið að gæða sér á íslensku hnossgæti framreiddu af meistarakokkinum Friðriki Sigurðssyni, sem vakti mikla lukku Íslandsvinanna.

Félagið France-Islande var stofnað árið 1984 og gefur m.a. út árfjórðungsritið Courrier d'Islande (Póstur frá Íslandi) og miðlar upplýsingum um Ísland og íslenska menningarviðburði í Frakklandi til félagsmanna.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum