Hoppa yfir valmynd
1. nóvember 2018 Utanríkisráðuneytið

Allt að 350 milljónir til félagasamtaka í þróunarsamvinnu og mannúðarmálum

Ljósmynd frá Úganda. - myndGSal

Utanríkisráðuneytið ætlar að verja allt að 350 milljónum króna til verkefna á sviði þróunarsamvinnu og mannúðarmála í gegnum félagasamtök. Umsóknarfrestur til þessara verkefna er til 30. nóvember og niðurstöður um úthlutun fjár til verkefna ætti að liggja fyrir í janúar á næsta ári. Innan við tíu íslensk félagasamtök eru virk í alþjóðlegu starfi á þessum sviðum en utanríkisráðuneytið hefur kallað eftir þátttöku fleiri samstarfsaðila, sérstaklega með skírskotun til áherslu á mannréttindi og samstarf við atvinnulífið.

Til þróunarsamvinnuverkefna er heimilt að veita styrki til sama verkefnis að hámarki í fjögur ár og styrkupphæðir til slíkra verkefna geta numið allt að 80% heildarkostnaðar. Til mannúðarverkefna eru framlög veitt í samræmi við alþjóðleg neyðarköll og í þeim tilvikum getur styrkupphæð numið allt að 95% heildarkostnaðar.

Ítarlegar upplýsingar um framlögin, mat á umsóknum, styrkhæfni félagasamtaka og önnur atriði sem fram þurfa að koma þegar sótt um styrkina er að finna á vef utanríkisráðuneytisins undir flokknum „Samstarf við borgarasamtök“.

Utanríkisráðherra úthlutar styrkjum að fengnu áliti þriggja manna matshóps sem skipaður er tveimur óháðum sérfræðingum á sviði þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar, eftir því sem við á, og einum fulltrúa utanríkisráðuneytisins.

Styrkumsóknir í nóvember 2018

  • Allt að 350 milljónir til félagasamtaka í þróunarsamvinnu og mannúðarmálum - mynd úr myndasafni númer 1

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
6. Hreint vatn og hreint
3. Heilsa og vellíðan
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum