Hoppa yfir valmynd
6. nóvember 2018

Margrét Harðardóttir tók við heiðurspeningi af konungi

Arkitektinn Margrét Harðardóttir tók í gær við heiðurspeningi kenndum við Eugen prins. Heiðurspeningurinn er veittur fyrir framlag til lista.

Það var Karl XVI Gustaf, konungur Svíþjóðar, sem afhenti peninginn við hátíðlega athöfn í konungshöllinni í Stokkhólmi. Sendiherra Íslands var á meðal viðstaddra.

Auk Margrétar hlutu listamennirnir Tal R, Jarl Ingvarsson, Mats Theselius og textíllistakonan Margareta Hallek heiðurspeninginn. 

Mynd: www.kungahuset.se

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum