Hoppa yfir valmynd
8. janúar 2019

Staða staðarráðins starfsmanns við sendiráð Íslands í Stokkhólmi laus til umsóknar

Sendiráð Íslands í Stokkhólmi gætir hagsmuna Íslands og Íslendinga ásamt því að efla tengsl Íslands og Svíþjóðar. Sendiráðið er auk þess sendiráð Íslands gagnvart Albaníu og Kúveit

Helstu verkefni staðarráðins starfsmanns

  • Almenn skrifstofustörf svo sem símsvörun, skjalavarsla, svörun almennra fyrirspurna bæði munnlega og skriflega, móttaka gesta og upplýsingagjöf á vefsíðu og samfélagsmiðlum sendiráðsins.
  • Umsjón með bókhaldi.
  • Þjónusta við Íslendinga í Svíþjóð og í öðrum umdæmislöndum sendiráðsins, t.d. vegna umsókna um vegabréf.
  • Aðstoð við ýmis verkefni og viðburði á vegum sendiráðsins, t.d. á sviði menningar- og viðskiptamála og almennra kynningarmála.
  • Önnur tilfallandi verkefni, svo sem akstur og útréttingar.

Unnið er náið með utanríkisráðuneytinu og eftir atvikum opinberum stofnunum á Íslandi og kjörræðismönnum Íslands. Samskipti eru við opinberar stofnanir í Svíþjóð og í öðrum umdæmislöndum sendiráðsins.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla af skrifstofustörfum.
  • Reynsla af bókhaldsstörfum er kostur.
  • Mjög góð sænskukunnátta og gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
  • Góð þekking á opinberum stofnunum, menningu og samfélagi í Svíþjóð og á Íslandi.
  • Góð tölvukunnátta, Word, Excel, Power Point.
  • Ökuréttindi.
  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur.

Leitað er að nákvæmum og skipulögðum einstaklingi sem hefur reynslu af því að búa í Svíþjóð til lengri tíma. Viðkomandi þarf að vera vel að sér um sænskt þjóðfélag, menningu og opinberar stofnanir og geta svarað fyrirspurnum hratt og örugglega á réttri og góðri sænsku, skriflega og munnlega. Íslenskt ríkisfang er ekki skilyrði.

Starfskjör staðarráðins starfsmanns eru samkvæmt sænskum reglum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf eigi síðar en 1. maí 2019.

Frekari upplýsingar veitir Estrid Brekkan, sendiherra, í síma (+46) 4428300. Einnig má senda fyrirspurnir á netfangið [email protected]. Umsóknir á íslensku eða sænsku ásamt ferilskrá skulu berast sendiráði Íslands í Stokkhólmi eigi síðar en 24. janúar 2018 á netfangið [email protected]

Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum