Hoppa yfir valmynd
28. janúar 2019

Íslenskt tónlistarsprengigos í Stokkhólmi

Í febrúar brýst angi af hinni kraumandi íslensku tónlistarsenu í gegnum ísilagða jarðskorpuna í Stokkhólmi með sannkölluðu tónlistarsprengigosi þar sem bæði vel þekktir listamenn og nýstirni á hraðri uppleið koma fram.

Til að vekja athygli á þessum annars ótengdu viðburðum hefur sendiráðið í Stokkhólmi safnað þeim saman undir nafninu Isländskt musikutbrott, sem á íslensku gæti útlagst sem íslenskt tónlistargos. Þá hafa íslenskir tónlistarmenn í Stokkhólmi verið hvattir til að nýta tækifærið og láta að sér kveða á sama tíma. 

Á meðal þeirra tónlistarmanna og hljómsveita sem þegar er staðfest að komi fram eru:

Kælan Mikla - Kraken, 2. febrúar
Ásgeir - Skandiascenen, 13. febrúar
Marína Ósk kvartett - Hotel Hellsten, 14. febrúar
Ólafur Arnalds, - Skandiascenen 14. og 15. febrúar (uppselt)
Júníus Meyvant - Nalen, 17. febrúar

 

Fleiri viðburðir munu bætast við á næstu dögum. Fylgist með dagskránni á Facebook-síðu viðburðarins.

Tónlistarmenn og hljómsveitir sem hafa áhuga á að taka þátt eru beðnir að hafa samband við menningarfulltrúa sendiráðsins í síma 545 7803 eða með tölvupósti; [email protected].

 

 

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum