Hoppa yfir valmynd
4. mars 2019 Utanríkisráðuneytið

Malpass fundaði með ráðherrum Norðurlanda og Eystrasaltsríkja

Guðlaugur Þór Þórðarson og David Malpass.  - mynd

Jafnréttismál, mannréttindi og loftslagsmál voru á meðal umræðuefna á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra, auk ráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í kjördæmi Alþjóðabankans með David Malpass, aðstoðarfjármálaráðherra Bandaríkjanna, í dag. Malpass er frambjóðandi Bandaríkjanna í stöðu forseta bankans. Ísland tekur sæti í stjórn Alþjóðabankans í sumar fyrir hönd kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja. Kjördæmið hefur eitt atkvæði af 25 í stjórn bankans, sem tekur ákvörðun um nýjan forseta.  

Á fundinum kynntu Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin þau málefni sem ríkin átta leggja áherslu á í málflutningi sínum innan Alþjóðabankans. Þau eru einkum á sviði jafnréttismála, mannréttinda, loftslags- og auðlindamála auk málefna sem lúta að viðkvæmum og óstöðugum ríkjum. Þá leggja löndin áherslu á að bæta mannauð í þróunarríkjum og að Alþjóðabankinn verði leiðandi á alþjóðavettvangi á sviði efnahags- og þróunarmála. 

„Alþjóðabankinn gegnir lykilhlutverki í alþjóðlegri þróunarsamvinnu og kjördæmi Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í bankanum hefur tekið virkan þátt í starfi og stefnumótun bankans. Kjördæmið hefur meðal annars verið leiðandi í umræðunni um jafnan rétt karla og kvenna í þróunarstarfi. Þegar Ísland tekur sæti í stjórn bankans fyrir hönd kjördæmisins síðar á þessu ári gefst enn betra tækifæri til að fylgja eftir þessum áherslum í starfi bankans“, segir Guðlaugur Þór. 

Á fundinum var jafnframt rætt um nýlega hlutafjáraukningu bankans og hvernig hún nýtist við að ná tveimur megin markmiðum bankans, að útrýma sárri fátækt fyrir árið 2030 og auka velsæld þeirra 40 prósent jarðarbúa sem búa við hvað lökust kjör.

  • Malpass fundaði með ráðherrum Norðurlanda og Eystrasaltsríkja - mynd úr myndasafni númer 1

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum