Hoppa yfir valmynd
22. mars 2019 Utanríkisráðuneytið

Stjórnvöld skrifa undir samkomulag við FAO

María Erla Marelsdóttir, skrifstofustjóri þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, og Árni M. Mathiesen aðstoðarframkvæmdastjóri fiskveiðisviðs FAO. - mynd

„Fiskveiðar, bláa hagkerfið og heilbrigð höf eru lykilþættir fyrir Ísland og stefnu okkar í þróunarsamvinnu. Við lítum því á samkomulagið við Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) sem góða leið til þess að styðja heimsmarkmiðin um sjálfbæra þróun,“ segir María Erla Marelsdóttir sendiherra og skrifstofustjóri þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins sem skrifaði í gær fyrir Íslands hönd undir rammasamning við FAO.

Samkvæmt samkomulaginu ætla FAO og Ísland að vinna náið saman að verkefnum sem stuðla að langtímavernd vistkerfa sjávar og felur í sér meðal annars fjárhagslegan og tæknilegan stuðning af Íslands hálfu. Þrír meginþætti samkomulagins eru baráttan gegn ólöglegum fiskveiðum, meðal annars með innleiðingu alþjóðlegs samnings hafnríkja um aðgerðir til að fyrirbyggja, hindra og uppræta ólöglegar, ótilkynntar og eftirlitslausar veiðar; í öðru lagi aðgerðir gegn rusli í höfum, sérstaklega plasti, glötuðum veiðafærum og drauganetum; og í þriðja lagi stuðning við sjóð innan FAO þar sem ein stoðin nefnist ,,Blue growth”.

Árni M. Mathiesen aðstoðarframkvæmdastjóri fiskveiðisviðs FAO fagnaði undirritun samningsins og sagði að stofnunin hafi ævinlega átt stuðning Íslands vísan, einkanlega á sviði fiskimála.

Samkomulag FAO og Íslands tengist beint fjórtánda heimsmarkmiðinu, um líf í vatni, en einnig öðrum heimsmarkmiðum eins og baráttunni gegn hungri.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

14. Líf í vatni
2. Ekkert hungur
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum