Hoppa yfir valmynd
20. maí 2019 Heilbrigðisráðuneytið

72. þing Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar-innar

Harald Aspelund og Anna Lilja Gunnarsdóttir á þingi WHO í Genf - myndHeilbrigðisráðuneytið

Í dag hófst í Genf 72. þing Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Áhugasamir geta fylgst með beinni útsendingu frá þinginu á vefnum.

Þingið sækja fyrir Íslands hönd Harald Aspelund, sendiherra í Genf og Anna Lilja Gunnarsdóttir, fyrrverandi ráðuneytisstjóri velferðarráðuneytisins og sérstakur erindreki íslenskra stjórnvalda á vettvangi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.

Síðar í vikunni mun Harald Aspelund flytja ræðu Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra undir yfirskriftinni Heilbrigðisþjónusta fyrir alla - Skiljum engan eftir (e. Universal health coverage: leaving no-one behind), sem fjallar um megináherslur Íslands í heilbrigðismálum og þau verkefni sem nú eru í forgangi af hálfu stjórnvalda.

 

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum