Hoppa yfir valmynd
16. júlí 2019 Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

Forsætisráðherra kynnir innleiðingu Íslands á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna á ráðherrafundi SÞ í New York

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, kynnti stöðu innleiðingar Íslands á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun á árlegum ráðherrafundi um heimsmarkmiðin í höfuðstöðvum SÞ í dag. Þetta er í fyrsta skipti sem Ísland kynnir landsrýni sína á framkvæmd heimsmarkmiðanna á vettvangi SÞ en landsrýniskýrsla Íslands var gefin út í júní sl.

Í kynningunni fór forsætisráðherra yfir helstu áskoranir og árangur í innleiðingu heimsmarkmiðanna á Íslandi, með sérstakri áherslu á loftslagsmálin en aðgerðir ríkja í loftslagsmálum munu hafa áhrif á framgang allra heimsmarkmiðanna. Hún sagði loftslagsbreytingar hafa áhrif á landið okkar, vistkerfi, hagkerfið og samfélagið allt. Brýnt væri að innleiða sjálfbærnihugsun í alla opinbera stefnumótun.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra:

„Til að ná árangri í baráttunni gegn loftslagsbreytingum þurfum við að leiðrétta ójafnvægi milli kynslóða og það efnahagslega ójafnrétti sem innbyggt er í vandann. Við þurfum á félagslegu réttlæti að halda, við þurfum á friði að halda og við þurfum að ná jafnrétti kynjanna. Stjórnvöld, nærsamfélög, atvinnulífið, félagasamtök, menntakerfið og almenningur þurfa öll að vinna saman. Og við þurfum á alþjóða samvinnu að halda meira en nokkru sinni fyrr.”

Árlegur fundur Sameinuðu þjóðanna um heimsmarkmiðin (High Level Political Forum, HLPF) stendur nú yfir í New York dagana 9.–18. júlí. Meginþema fundarins er: Empowering people and ensuring inclusiveness and equality. Áherslumarkmiðin 2019 eru menntun fyrir alla (SDG 4), góð atvinna og hagvöxtur (SDG), aukinn jöfnuður (SDG 10), aðgerðir í loftslagsmálum (SDG 13), friður og réttlæti (SDG 16) og samvinna um markmiðin (SDG 17), það síðastnefnda er til umfjöllunar á hverju ári.

Í tengslum við ráðherrafundinn mun forsætisráðherra einnig taka þátt í þremur mismunandi hliðarviðburðum sem Ísland stendur að í samvinnu við; Norrænu ráðherranefndina; Malaví; og Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD) og Rúmeníu. Þá mun forsætisráðherra síðar í dag eiga tvíhliðafundi með Helen Clark, fyrrum framkvæmdastjóra Þróunarstofnunar SÞ og Luis Alfonso de Alba, sérstaks erindreka framkvæmdastjóra SÞ fyrir leiðtogafund um loftslagsmál sem fram fer í New York í september n.k. í tengslum við Allsherjarþing SÞ.

Kynning um innleiðingu Íslands á heimsmarkmiðunum


  • Kynning um innleiðingu Íslands á heimsmarkmiðunum - mynd
  • Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna - mynd

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum