Hoppa yfir valmynd
24. ágúst 2019 Utanríkisráðuneytið

Fríverslunarsamningur EFTA og Mercosur í höfn

Samninganefndir EFTA og Mercosur í Buenos Aires í gær - mynd

Samningar hafa nú náðst um fríverslun milli EFTA-ríkjanna fjögurra og aðildarríkja Mercosur, Argentínu, Brasilíu, Úrúgvæ og Paragvæ. Með samningnum lækka tollar á bróðurpart þeirrar vöru sem flutt er út frá Íslandi. Nær allar sjávarafurðir sem Ísland flytur út munu njóta fulls tollfrelsis, sumar frá gildistöku samningsins en aðrar að loknum mislöngum aðlögunartíma.

„Við höfum lagt mikla áherslu á að ljúka samningaviðræðum við Mercosur-ríkin og það er ánægjulegt að sá samningur sé nú í höfn. Markaðsaðgangur fyrir sjávarafurðir er sérstaklega mikilvægur fyrir okkur og hann eykst umtalsvert með þessum samningi,“ sagði Guðlaugur Þór. „Ég tel að við getum verið mjög sátt við þennan samning, sérstaklega þar sem hann er ekki síðri en sá sem Mercosur hefur nýlega samið um við Evrópusambandið."

Viðskipti Íslands og Mercosur eru talsverð. Á síðasta ári nam vöruútflutningur til Mercosur um 1,5 milljarði og vöruinnflutningur til Íslands frá ríkjum Mercosur nam um 24 milljörðum. Í innflutningi til Íslands vegur áloxíð langþyngst en það er þegar tollfrjálst.

Frekari upplýsingar um samninginn er að finna á vef EFTA.


Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum