Hoppa yfir valmynd
28. febrúar 2020

Umfjöllun um jafnréttismál á Norðurlöndunum í Le Figaro

Í dag vitnaði franska stórblaðið, Le Figaro, í Kristján Andra Sigurðsson, sendiherra Íslands í París, þar sem hann bendir á mikilvægi jafnréttismála í utanríkisstefnu Íslands. Norðurlöndin hafa vakið mikla athygli í Frakklandi fyrir árangur í jafnréttismálum, ekki síst fyrir að fjórir af fimm forsætisráðherrum Norðurlandanna, Katrín Jakobsdóttir, Erna Solberg, Sanna Marin og Mette Frederiksen, eru konur.
Mikil áhersla er lögð á jafnréttismál í Frakklandi um þessar mundir en stjórnvöld eru að undirbúa „Generation Equality Forum“ eða Peking +25, í samstarfi við stjórnvöld Mexíkó og UN Women. Generation Equality Forum mun leiða saman ríkisstjórnir, einkageirann og frjáls félagasamtök í bandalög til að greina hvað hefur áunnist frá því að aðgerðaráætlunin að auknu jafnrétti kynjanna var samþykkt 1995 og vinna að úrbótum á þeim sviðum sem enn hallar á konur og stúlkur í samræmi við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Á myndinni má sjá Delphine O, sendiherra og framkvæmdastýru Peking + 25, tala um væntingar til ráðstefnunnar sem verður haldin í júlí í París á viðburði í finnska sendiráðinu í París um jafnrétti, en mörg sendiráð í París hafa tekið höndum saman til þess að vekja athygli á mikilvægi þessa málaflokks í aðdraganda ráðstefnunnar.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum