Hoppa yfir valmynd
26. maí 2020

Forsetakosningar 2020

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakosninga 2020 hefst mánudaginn 25.maí í sendiráði Íslands í Tókýó.

Sendiráðið tekur á móti kjósendum eftir samkomulagi.

Einnig verður hægt að kjósa á ræðisskrifstofu Íslands í Kýótó, eftir samkomulagi við ræðismann.

Kjósendur eru beðnir um að framvísa íslenskum persónuskilríkjum með mynd, þ.e. vegabréfi eða ökuskírteini. Athugið að sérstakar ráðstafanir eru gerðar á kjörstað til að minnka hættu á smiti vegna Covid-19 faraldursins.

Gert er ráð fyrir að kjósendur kynni sér sjálfir hverjir eru í framboði en hagnýtar upplýsingar um kosningarnar verða birtar á kosning.is

Athygli kjósenda er ennfremur vakin á því að þeim ber sjálfum að póstleggja atkvæði sín eða koma þeim á annan hátt í tæka tíð til viðkomandi kjörstjórnar á Íslandi, þ.e. fyrir kjördag laugardaginn 27. júní.

Símanúmer sendiráðsins: 03-3447-1944

Tölvupóstur: [email protected]

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum