Hoppa yfir valmynd
26. apríl 2021

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna tillagna um sameiningu sveitarfélaga

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna tillagna um sameiningu sveitarfélaga - myndHaraldur Jónasson / Hari
Sendiráðið vekur athygli á að utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna tillagna um sameiningu sveitarfélaganna Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar annars vegar og Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps, Skagabyggðar og Sveitarfélagsins Skagastrandar hins vegar hófst 10. apríl sl. 

Í ljósi aðstæðna tengdum Covid-19 faraldrinum, eru kjósendur vinsamlegast beðnir um að panta tíma áður en þeir koma á kjörstað, með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected] eða í síma 2323 7530. Sendiráðið er til húsa á Stortingsgata 30, 0244 Oslo og hægt verður að kjósa alla virka daga frá kl. 10-15.

Kjósendur eru beðnir um að framvísa íslenskum persónuskilríkjum með mynd, þ.e. vegabréfi eða ökuskírteini.

Kosningarrétt eiga allir íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag, 5. júní 2021, og sem skráðir eru með lögheimili í viðkomandi sveitarfélagi á Íslandi, þremur vikum fyrir kjördag, þ.e. 15. maí 2021.

Einnig eiga kosningarrétt norskir, finnskir, danskir og sænskir ríkisborgarar sem átt hafa lögheimili á Íslandi í þrjú ár samfellt fyrir kjördag og aðrir erlendir ríkisborgarar sem átt hafa lögheimili á Íslandi í fimm ár samfellt fyrir kjördag, enda fullnægi þeir að öðru leyti framangreindum skilyrðum.

Atkvæðagreiðslan fer þannig fram að kjósandi stimplar eða ritar á kjörseðil orðið „já“ ef hann er hlynntur tillögu um sameiningu sveitarfélaganna eða „nei“ ef hann er mótfallinn tillögunni.

Athygli kjósenda er vakin á því, að þeim ber sjálfum að póstleggja atkvæði sín eða koma þeim á annan hátt í tæka tíð til viðkomandi kjörstjórnar á Íslandi. Kjósendur eru því hvattir til að vera tímanlega á kjörstað í ár, þar sem póstsendingar gætu tekið lengri tíma en vant er.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum