Hoppa yfir valmynd
18. nóvember 2021

Heimsókn til Uttarakhand-fylkis

Guðni Bragason sendiherra og forsætisráðherra Uttarakhand-fylkis, Pushkar Sing Dhami - mynd

Endurnýjanlegir orkugjafar og nýting þeirra var megin umræðuefnið í heimsókn Guðna Bragasonar sendiherra til Uttarakhand-fylkis, sem liggur við rætur Himalayafjalla, 11. – 13. nóvember 2021. Sendiherra átti fund með Pushkar Sing Dhami forsætisráðherra Uttarakhand-fylkis 12. nóvember í höfuðborginni Dehradun. Viðstaddir voru einnig menntamála- og ferðamálaráðherra fylkisins, en af hálfu sendiráðsins Sigþór Hilmisson staðgengill sendiherra og Rahul Chongtham viðskiptafulltrúi.  Töluverðir möguleikar eru fyrir nýtingu jarðvarma í fylkinu og hefur hann hingað til aðallega verið nýttur í sambandi við böð á helgistöðum Hindúa. Jafnframt var haldinn fundur með dr. Harak Singh Rawat ráðherra orku- og loftslagsmála. Sendiherra átti einnig fund með frú Inda Bala, sem er ein helsta baráttukona fyrir jafnrétti og samvinnustarfsemi kvenna í fylkinu.

Sendiherra flutti ávarp á kvöldverðar- og kynningarfundi IIBA um ýmis áherslumál í stjórnmálum og viðskiptum og Rahul Chongtham viðskiptafulltrúi kynnti starf Íslands að orkunýtingu og ferðamennsku. Þá heimsótti sendiherra og samstarfsmenn Wadia-stofnunina (Wadia Institute of Himalayan Geology), sem er helsta vísindastofnun í jarðfræði Himalajafjalla og jafnframt Doon-skólann, sem er þekktasti menntaskóli Indlands.

  • Frá heimsókninni til Uttarakhand-fylkis - mynd
  • Sagt var frá heimsókninni í dagblaðinu Garhwal Post - mynd

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum