Hoppa yfir valmynd
7. febrúar 2022

Sendiherra afhendir trúnaðarbréf á Sri Lanka

Guðni Bragason afhendir Gotabaya Rajapaksa, forseta Sri Lanka, trúnaðarbréf sitt. - mynd

Guðni Bragason afhenti Gotabaya Rajapaksa forseta Sri Lanka trúnaðarbréf sitt hinn 1. febrúar 2022 sem sendiherra gagnvart ríkinu með aðsetri í Nýju-Delhí. Bar sendiherra forsetanum kveðjur forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessonar, og sagðist myndu vinna heils hugar að því að efla samskipti ríkjanna. Viðstaddir trúnaðarbréfsafhendinguna voru dr. Gamini Lakshman Pieris utanríkisráðherra og Gamini Senarath forsetaritari. Samskipti Íslands og Sri Lanka hafa lengi verið góð og hafði Ísland sendiskrifstofu í höfuðborginni Colombo frá 2005 til 2009, sem sinnti aðallega samstarfi á vettvangi sjávarútvegs. Töluverðir samstarfsmöguleikar eru einnig á sviði ferðamennsku.

Sendiherra heimsótti Hafrannsóknarstofnun Sri Lanka (NARA), samstarfsstofnun Sjávarútvegsskólans (FTP) og átti fund með forstjóranum, dr. H.M.P Kithsiri og samstarfsmönnum hans. Frá Sri Lanka hafa á þriðja tug sérfræðinga komið til þjálfunar á Íslandi í sjávarútvegsskólanum, og tveir fengið styrk til meistaranáms og doktorsnáms. Sjávarútvegsskólinn hefur einnig staðið fyrir námskeiðum á sviði sjávarútvegs um öryggi fiskiskipa og báta og verkefnastjórnun með 113 þátttakendum.

Íslenska friðargæslan (ICRU) tók þátt í norrænu friðargæsluverkefni í Sri Lanka (Sri Lankan Monitoring Mission, SLMM), sem stofnað var til 2002, og störfuðu margir Íslendingar í SLMM-sveitinni.

  • Sendiherra afhendir trúnaðarbréf á Sri Lanka - mynd úr myndasafni númer 1
  • Sendiherra afhendir trúnaðarbréf á Sri Lanka - mynd úr myndasafni númer 2

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum