Hoppa yfir valmynd
7. febrúar 2023 Utanríkisráðuneytið

Sveitin leggur af stað til Tyrklands í kvöld

Hópurinn í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð í kvöld - myndSigurður Ólafur Sigurðsson / Slysavarnafélagið Landsbjörg
Hópur íslenskra sérfræðinga á sviði aðgerðastjórnunar í rústabjörgun á hamfarasvæðum leggur af stað til jarðskjálftasvæðanna í Tyrklandi í kvöld. 

Upphaflega stóð til að flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF flygi með hópinn í dag en vegna óhagstæðra veðurskilyrða á leiðinni varð að fresta brottför til morguns. Sökum þess að unnið er í kapp við tímann á vettvangi og hver mínúta skiptir þar máli var ákveðið að semja í staðinn við Icelandair um að flytja hópinn til Tyrklands strax í kvöld. Flugvél Icelandair getur flogið þangað án millilendingar og er gert ráð fyrir að hún verði komin á áfangastað í fyrramálið.  

Sérfræðingasveitin starfar innan vébanda Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Um er að ræða aðgerðastjórnendur, verkfræðinga og stuðningsteymi. Ísland er virkur þáttakandi sérstaks samstarfsvettvangs á vegum Sameinuðu þjóðanna um rústabjörgun (INSARAG) og er sveitin á viðbragðslista hans.

Stjórnvöld í Tyrklandi hafa óskað eftir aðstoð vegna hamfaranna sem þar hafa dunið yfir og hafa hjálparbeiðnir borist bæði í gegnum viðbragðskerfi Sameinuðu þjóðanna og Atlantshafsbandalagsins. Til viðbótar við stuðning við hjálpar- og björgunarstarfið í Tyrklandi munu íslensk stjórnvöld styðja fórnarlömb jarðskjálftanna á Sýrlandi í gegnum alþjóðleg hjálparsamtök.
 

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum