Hoppa yfir valmynd

Frétt

29. maí 2000 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar starfsmanna á ferðalögum innanlands nr. 3/2000

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:

1. Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 10.600
2. Gisting í einn sólarhring kr. 6.400
3. Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag kr. 4.200
4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 2.100


Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. júní 2000. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 6/1999 dags. 17. september 1999.

Nefndin fer þess á leit við viðkomandi ráðuneyti að þau kynni efni þessarar auglýsingar þeim stofnunum og fyrirtækjum sem undir þau heyra.

Reykjavík, 29.maí 2000

Ferðakostnaðarnefnd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum