Hoppa yfir valmynd

Frétt

24. nóvember 2000 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar starfsmanna á ferðalögum innanlands nr. 9/2000

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:

1. Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 9.900
2. Gisting í einn sólarhring kr. 5.600
3. Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag kr. 4.300
4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 2.150


Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. desember 2000. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 6/2000 dags. 23. júní 2000.

Nefndin fer þess á leit við viðkomandi ráðuneyti að þau kynni efni þessarar auglýsingar þeim stofnunum og fyrirtækjum sem undir þau heyra.

Reykjavík, 24. nóvember 2000

Ferðakostnaðarnefnd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum